Þrettándagleði á Ásvöllum

Jólin verða kvödd með dansi og söng á glæsilegri Þrettándagleði á Ásvöllum föstudaginn 6. janúar.
Hátíðin hefst kl. 18. Guðrún Árný stjórnar söng og dansi af sviði. Kertasníkir, Grýla, álfar og púkar verða á sveimi á svæðinu. Í afgreiðslu verður hægt að kaupa kakó, kleinur og stjörnuljós.  Hátíðinni lýkur um kl. 18:45 með glæsilegri flugeldasýningu Björgunarsveitar Hafnarfjarðar.