-
-
VIÐURKENNINGAHÁTÍÐ 2023
Á Gamlársdag heiðrar félagið sitt besta íþróttafólk, leikmenn og þjálfara á samkomu sem haldin verður í íþróttasal í hádeginu og hefst kl. 12. Hátíðin er öllum opin og eru Haukafélagar hvattir til að mæta.
-
Þorláksmessuskata
Á Þorláksmessu verður að venju boðið upp á skötu og saltfisk í Samkomusalnum. Húsið opnar kl. 11: 30. Borðapantanir í síma 525 8700 og bhg@haukar.is
-
Blíða og blár himinn
Það var ánægjulegt að sjá stórvirkar vinnuvélar lyfta stálboga hátt til himins í blíðviðrinu í gær. Senn er ár liðið síðan bygging knatthússins hófst og óhætt er að segja að verkið gangi vel og fylgir vel verkáætlun. Það hefur verið afar ánægjulegt að fylgjast með byggingu hússins, skref fyrir skref, og verða vitni að faglegum…
-
Sætur er sjaldfenginn matur
Hann var þéttsetinn Forsalurinn í síðustu viku þegar Lávarðarnir – ökumenn Hauka, settust að snæðingi ásamt öðrum góðum félögum og tóku vel til matar síns. Á borðum var hrossakjöt með öllu. Ræðumaður kvöldsins var Ögmundur Jónasson, fyrrum ráðherra og alþingismaður, og var gerður góður rómur að máli hans. Samkomunni stjórnaði af festu Magnús Gunnarsson, formaður…
-
HROSSAKJÖTSVEISLAN GÓÐA
Miðvikudaginn 8. nóvember verður boðið upp á úrvals hrossakjöt og meðlæti. Heiðursgestur og ræðumaður verður Ögmundur Jónasson fyrrv. þingmaður og ráðherra. Veislan hefst kl 19:00 – húsið opnar kl. 18:30 Takmarkað sætaframboð! Miðaverð kr. 5000.- Miðasala og pantanir í afgreiðslu og bhg@haukar.is Nefndin
-
Sorgarfrétt
Sá sorglegi atburður átti sér stað í gær að 8 ára gamall drengur, iðkandi hjá Haukum í fótbolta, lét lífið í umferðarslysi hér á Ásvöllum. Við sendum fjölskyldu drengsins, innilegar samúðarkveðjur vegna þessa hörmulega slyss. Hugur okkar er hjá ykkur. Knattspyrnufélagið Haukar.
-
Haukamótið í golfi 2023 – úrslit
Golfmót Hauka fór fram í 34. skipti föstudaginn 15. september sl. Met þátttaka var að þessu sinni og voru 135 keppendur skráðir til leiks og lítið um forföll. Úrslit í mótinu urðu þessi: Haukakönnuna hlaut Bjarki Snær Halldórsson á 73 höggum. Eiríkur sigraði í punktakeppni og keppni um Rauða jakkann á 41 punkt (fleiri punktar…
-
Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum.
Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða karl og konu í störf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjendur hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, séu reglusamir og tilgreini meðmælendur í umsókn.Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is
-
Knatthúsið okkar!
Eins og flestir hafa tekið eftir þá ganga framkvæmdir við knatthúsið vel og byggingin rammast vel inn í íþróttasvæðið okkar. Framkvæmdir eru á áætlun og gert er ráð fyrir að taka knatthúsið í notkun í lok næsta árs. Varla þarf að fara mörgum orðum um hversu kærkomið knatthúsið er, en það mun gjörbreyta allri umgjörð…
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
