Uncategorized

  • Andlátsfrétt

    Látinn er eftir erfið veikindi, Árni Sverrisson, fyrrum formaður félagsins. Árni lék handbolta með Haukum um árabil, starfaði í stjórn handknattleiksdeildar og var kjörinn formaður félagsins 2004 og gegndi því starfi til 2006. Hann var alla tíð með öflugustu stuðningsmönnum félagsins og er hans nú sárt saknað. Félagið sendir fjölskyldu Árna innilegustu samúðarkveðjur.    

  • Spennandi tímar á Ásvöllum

    Á undanförnum misserum hefur verið unnið að margvíslegum verkefnum hér á Ásvöllum. Nú styttist í að knatthöllin verði fullgerð, knattsalurinn verður tilbúinn fyrir áramót og reiknað er með að þjónustubygging knatthallar verði að fullu tekin í notkun á árinu 2025.  Þá styttist í að göngustígur, svokallaður Grísanesstígur, verði frágenginn frá nýrri brú við Ástjörn að…

  • Andlátsfrétt

    Látinn er langt fyrir aldur fram, Gísli Ölver Sigurðsson, góður og gegn Haukamaður. Gísli fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1969. Hann æfði og spilaði handbolta í yngri flokkum Hauka og í meistaraflokki félagsins um árabil.  Knattspyrnufélagið Haukar sendir fjölskyldu Gísla innilegar samúðarkveðjur.

  • Andlátsfrétt

    Látinn er góður og gegn Haukamaður, Ragnar Árnason. Hann var einn af tryggustu stuðningsmönnum handboltans, haukur í horni, mætti á flesta leiki glaður og hress. Skákmaður var hann snjall, formaður skákdeildar Hauka 2014 og stjórnarmaður til margra ára. Félagið sendir fjölskyldu Ragnars innilegar samúðarkveðjur.

  • Sumartafla hjá yngri flokkum Knattspyrnudeildar birt

    Hér fyrir neðan má sjá æfingatíma hjá yngri flokkum Knattspyrnudeildar sumarið 2024. Sumartaflan verður tekin í gildi eftir skólaslit 10.júní 8.fl.kk/kvk Þriðjudagur: 17:00-18:00 Fimmtudagur: 17:00-18:00 Á grasinu fyrir aftan stúkuna 7.fl.kk Mán-fimmt: 12:45-13:45 7.fl.kvk Mán-fimmt: 13:50-14:50 6.fl.kk Mán-fimmt: 13:50-14:50 6.fl.kvk                               …

  • Hvítasunnuhlaup Almenningsdeildar Hauka 2024

    Kæru hlaupafélagar, Hvítasunnunefnd, sjálfboðaliðar, aðstoðarfólk og starfsfólk Hauka. Kærar þakkir fyrir frábæran undirbúning og framkvæmd á Hvítasunnuhlaupi Hauka 2024 sem fram fór í fínu veðri og frábærri stemningu. Alls tóku um 450 einstaklingar þátt í hlaupinu. Músík og  góð stemning var í brautinni og í  marki. Bestu þakkir til ykkar allra sem lögðu hönd á plóg,…

  • Aðalfundur Hauka 2024

    Í gær var haldinn fjölmennur aðalfundur félagsins í Samkomusalnum hér á Ásvöllum. Í ársskýrslu aðalstjórnar kom fram að rekstur félagsins er með ágætum og ársreikningar jákvæðir. Magnús Gunnarsson var endurkjörinn formaður. Aðrir í aðalstjórn félagsins eru, Valgerður Sigurðardóttir varaformaður, Guðborg Halldórsdóttir gjaldkeri, meðstjórnendur Andri Már Ólafsson, Elva Guðmundsdóttir, Brynjar Steingrímsson, Baldur Óli Sigurðsson, Halldór Jón…