Uncategorized

  • Andlátsfrétt

    Látinn er góður félagi, Kristinn Guðnason. Kristinn kom fyrst að endurreisnarstarfi félagsins 1969 sem fulltrúi Körfuknattleiksdeildar í aðalstjórn félagsins. Hann er formaður Körfuknattleiksdeildar árin 1981 – 1986 – á einu mesta blómaskeiði deildarinnar þegar margir titlar komu í hús. – Kristni eru þökkuð góð störf í þágu félagsins og sendir félagið fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.

  • Sumaríþróttaskóli Hauka byrjar aftur eftir sumarfrí

    Sumaríþróttaskólinn fer aftur í gang eftir smá sumarfrí. Námskeið verður í boði næstu tvær vikur. Báðar vikurnar verða 4 daga námskeið, 8-11.ágúst og 14-17.ágúst. Því miður þá þurfum við að hafa lokað föstudaginn 18.ágúst þar sem stór hluti starfsmanna er að byrja í framhaldsskóla og því ekki nógu margir starfsmenn til að halda námskeið. Í…

  • Traustur félagi fellur frá

    Fallinn er í valinn góður og gegn Haukafélagi, Jóhann Larsen. – Saga fótboltans í Haukum verður ekki svo skrifuð að Jói komi ekki þar við sögu. Hann var leikmaður allra yngri flokka félagsins auk þess að vera burðarás í meistaraflokki og vinsæll þjálfari yngri flokka á árunum 1960 -70. Formaður Knattspyrnudeildar 1967 – 1970. Einn…

  • Vormót Skákdeildar Hauka 2023

    Það mættu 19 krakkar à Vorskákmót Hauka í dag. Mikil stemmning og gaman. Allir krakkarnir fengu verðlaunapening fyrir þàttöku og svo voru veitt flokkaverðlaun. Í stúlknaflokki vann Helma Heiðarsdóttir og í öðru sæti varð Sigurós Hansen. Mjög efnilegar stúlkur og duglegar. Yngri flokkinn vann Jonatan Szaro, öðru sæti Ari Leó Ólafsson og í þriðja varð…

  • Síðasta skákæfingin í bili er í dag 9/05 2023.

    Kæru foreldrar og börn, (english below) Við í Skákdeild Hauka verðum því miður að hryggja ykkur með því að æfingin á morgun Þriðjudag 9/5 verður því miður síðasta æfingin í bili. Ástæðan er meðal annars smá kennaravesen og einnig húsnæðisvandamál. Í næstu viku byrjar nefnilega Skákþing Íslands sem að fram fer á Ásvöllum. En við…

  • Ánægjulegur fundur

    Aðalfundur félagsins var haldinn sl. miðvikudag í Samkomusal félagsins.  Fjölmenni  var á fundinum  þar sem bjartsýni og baráttuhugur ríkti. Fram kom í skýrslu stjórnar að hagur félagsins er góður.  Ný stjórn var kjörin en hana skipa: Magnús Gunnarsson, formaður, Valgerður Sigurðardóttir, Guðborg Halldórsdóttir, Þorkell Magnússon, Elva Guðmundsdóttir, Bragi Hinrik Magnússon, Tóbías Sveinbjörnsson, Halldór Jón Garðarsson,…

  • Aðalfundur Hauka

    Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl kl. 17:30 í Samkomusal félagsins að Ásvöllum. Dagskrá fundar samkvæmt lögum félagsins. Félagar hvattir til að mæta! Stjórnin

  • Haukar í Horni handbolti ATH

    Kæru Haukar í Horni handboltans! Í kvöld verður kjúklingasúpa fyrir Hauka í Horni handboltans í hálfleik á leik Hauka og Vals í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Á morgun er leikur tvö í rimmu kvennaliðs Hauka og Fram en þá bjóðum við upp á brauð og salöt í hálfleik. Karlaleikurinn hefst kl. 19:30 í kvöld og kvennaleikurinn…

  • RISALEIKUR annað kvöld!

    Annað kvöld tekur meistaraflokkur karla á móti liði Vals í öðrum leik liðanna í  8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu fyrri leikinn á útivelli og hafa því yfirhöndina í einvíginu. Búast má við hörkuleik og því mikilvægt að fá allt okkar stuðningsfólk á leikinn. Leikurinn hefst kl. 19:30 og verða seldar…