Uncategorized

  • Gleðilega jólahátíð

    Óskum ykkur, kæru Haukafélagar,  stuðningsaðilum og öðrum velunnurum félagsins, gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegar samverustundir og stuðning á árinu sem er að líða. Stefnum á nýtt ár með nýjum tækifærum og fleiri áskorunum! Áfram Haukar.

  • Viðurkenningahátíð Hauka 2022

    Venju samkvæmt heiðra Haukar sitt besta íþróttafólk á viðurkenningahátíð sem haldin verður í íþróttasal í hádeginu á Gamlársdag. Eftirtalin hafa verið tilnefnd: Íþróttakona Hauka Kristín Fjóla Sigþórsdóttir – fótbolti Eva Margrét Kristjánsdóttir – karfa Ísold Elísa Hlynsdóttir – karate Elín Klara Þorkelsdóttir – handbolti Erla Skaftadóttir – skokk —————————————— Íþróttamaður Hauka Milos Peric – fótbolti…

  • Nú byggjum við knatthús. Til hamingju Haukar!

    Í dag, 29. nóvember, var undirritaður samningur á milli Hafnarfjarðarbæjar og ÍAV um byggingu knatthúss að Ásvöllum. Haukar hafa lengi beðið eftir bættri aðstöðu til knattspyrnuiðkunar og með tilkomu glæsilegs knatthúss sjáum við drauma okkar verða að veruleika. Unnið hefur verið að hönnun knatthússins allt frá árinu 2018 samhliða því sem unnið var að ítarlegu…

  • Hrossakjötsveislan góða

    Næstkomandi miðvikudag, 23. nóvember, verður hin árlega hrossakjötsveisla haldin á Ásvöllum. Í boði er úrvals hrossakjöt ásamt meðlæti á hófsömu verði. Heiðursgestur kvöldsins og ræðumaður verður Valdimar Víðisson, formaður bæjarráðs og skólastjóri. Miðasala eða pöntun: Í afgreiðslu eða í síma 525 8700 eða bhg@haukar.is Veislan hefst kl. 19:00 — Húsið opnar kl. 18:30 TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ!…

  • Lávarðadeild Hauka

    Haukar hafa löngum státað af öflugum sjálfboðaliðum sem hafa lagt fram ómælda vinnu fyrir félagið sitt. Fyrir nokkrum árum bættist í hóp sjálboðaliðanna afar öflugur hópur heldri manna sem við völdum að kalla lávarða. Þótti auðvitað sjálfsagt að deild þessarar höfðingja bæri nafnið Lávarðadeild Hauka. Hlutverk félaga í Lávarðadeildinni er að flytja bíla fyrir Bílaleiguna…

  • Var landsleikur á Ásvöllum síðastliðinn laugardag?

    Engu var líkara en að um stórviðburð væri að ræða á Ásvöllum sl. laugardagsmorgun þegar sá sem hér skrifar kom akandi að Íþróttamiðstöðinni, en öll bílastæði voru hér upptekinn. Nei, ástæðan var ekki landsleikur heldur var leikjaskóli barnanna í fullum gangi. Aldrei hefur annar eins fjöldi barna á aldrinum 2 til 5 ára verið skráður…

  • Framtíðin er björt!

    Nú líður senn að lokum leiktíðar hjá knattspyrnudeild og deildin heldur sitt lokahóf á Ásvöllum á morgun, laugardag 17. september. Við hefðum vissulega viljað að gengi meistaraflokka félagsins hefði verið betra í sumar en raun ber vitni um. Við getum hins vegar glaðst yfir öflugu starfi yngri flokka og þá mun öflug uppbygging á svæðum…

  • Gervigrasvöllur og búningsklefar.

    Hjá stóru og öflugu íþróttafélagi er jafnan í mörg horn að líta og í sumar hefur svo sannarlega verið í nógu að snúast. Nýtt gervigras. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því að leggja nýtt gervigras á keppnis- og æfingavöll félagsins. Það voru starfsmenn fyrirtækisins Metatron sem sáu um lagningu gervigrassins og nú er þeirri vinnu…