RISALEIKUR annað kvöld!

Annað kvöld tekur meistaraflokkur karla á móti liði Vals í öðrum leik liðanna í  8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu fyrri leikinn á útivelli og hafa því yfirhöndina í einvíginu. Búast má við hörkuleik og því mikilvægt að fá allt okkar stuðningsfólk á leikinn.

Leikurinn hefst kl. 19:30 og verða seldar pizzur á vægu verði fyrir leik.

Einnig er Haukum í Horni boðið í gómsæta kjúklingasúpu í hálfleik ~ Það margborgar sig að vera Haukur í Horni og hvetjum við þig til að gerast meðlimur ef þú ert það ekki nú þegar.

MÆTUM Á VÖLLINN ~ ÁFRAM HAUKAR