Guðrún Jóna og Katrín láta af störfum
Meistaraflokksráð kvenna í knattspyrnudeild Hauka og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Katrín Ómarsdóttir hafa komist að þeirri niðurstöðu að þær láti af störfum sem þjálfarar liðsins. Það er ljóst að árangur liðsins í sumar er langt undir væntingum en liðið vermir nú botnsæti Lengjudeildarinnar. Stjórn knattspyrnudeildar Hauka þakkar þeim Jónu og Katrínu innilega fyrir gott samstarf…
