EVRÓ – Komnir til Aveiro
Strákarnir komu á leiðarenda um miðnætti í gær eftir erfitt og flókið ferðalag miðað við fjarlægð. Hótelið er mjög gott. Þeir fóru á æfingu í morgun sem gekk vel og allir eru hressir.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Strákarnir komu á leiðarenda um miðnætti í gær eftir erfitt og flókið ferðalag miðað við fjarlægð. Hótelið er mjög gott. Þeir fóru á æfingu í morgun sem gekk vel og allir eru hressir.
Fyrsti leikurinn á Íslandsmótinu hjá stelpunum okkar er á morgun. Það er GróttaKR sem kemur í heimsókn og er leikurinn kl. 20.00 á Ásvöllum. Allir að mæta.
Snemma í morgun lögðu strákarnir okkar af stað frá Ásvöllum áleiðis til Portúgal. Á fyrsta áfangastað var ekki langt að fara, rétt suður í Keflavík. Frá Keflavík flugu þeir til Kaupmannahafnar og þaðan til Parísar og síðan til Portó. Frá Portó liggur leið þeirra til Aveiro, heimabæjar mótherjanna í Sao Bernardo og ættu þeir að…
Fyrstu tvö stigin komu í hús þegar strákarnir okkar hófu titilvörnina með góðum sigri 29-23 á Stjörnunni á Ásvöllum í kvöld. Þeir byrjuðu leikinn ekki vel og gestirnir skoruðu fyrstu 3 mörkin. Okkar menn jöfnuðu 3-3 og síðan var jafnt á öllum tölum í 9-9. Þá komu þrjú Haukamörk í röð 12-9 og staðan í…
Fyrsti leikurinn á Íslandsmótinu hjá strákunum er á morgun kl. 20.00 á Ásvöllum við Stjörnuna. Svo er það Sao Bernardo í Portúgal í Evrópukeppninni á laugardag. Strákarnir fara síðan í Kópavoginn og mæta HK fimmtudaginn 25. sept. kl. 20.00 og fá hitt Kópavogsliðið, Breiðablik í heimsókn á Ásvelli, sunnudaginn 28. sept. kl. 19.15. Hjá stelpunum…
Í dag hélt HSÍ kynningarfund fyrir Íslandsmótið og var þar kynnt spá þjálfara og fyrirliða um árangur liðanna. Strákunum okkar er spáð 1. sætinu með nær fullt hús stiga 538 af 540 mögulegum og stelpunum okkar er spáð 2. sætinu. Spáin er þessi: Meistaraflokkur karla: 1. Haukar 538 2. Valur 495 3. ÍR 459 4….
Strákarnir okkar unnu stórsigur 37-23 á Bernardo í fyrri leik liðanna á Ásvöllum í dag. Þrátt fyrir að Haukarnir væru ekki að spila nógu vel í fyrri hálfleik, voru þeir með yfirhöndina allan leikinn, gestirnir jöfnuði einu sinni 3-3 en eftir það var aldrei spurning með úrslitin. Staðan í hálfleik var 17-12 og í seinni…
Þó Haukar hafi byrjað handknattleiksvertíðina sl. sunnudag með því að innbyrða fyrsta titilinn sem í boði er þá hefst vertíðin af alvöru á laugardaginn kl.16:30 að Ásvöllum þegar þeir mæta CD S. Bernardo frá Portúgal. Um er að ræða geysilega mikilvægan leik, sem skiptir íslenskan handbolta miklu máli. Nái Haukar hagstæðum úrslitum gegn Portúgölunum þá…
Fyrsti titilinn er í höfn hjá stelpunum er þær unnu ÍBV í úrslitaleik á Reykjavíkur Open í dag. Í morgun unnu þær FH 16-12 og tryggðu sér þar með sæti í úrslitaleiknum við ÍBV. Leikurinn við ÍBV var æsispennandi, jafnt var eftir venjulegan leiktíma 24-24, eftir fyrri framlengingu var ennþá jafnt 30-30 og seinni framlenging…
Stelpurnar hafa klárað sína leiki í riðlinum á Reykjavíkur Open. Á fimmtudag töpuðu þær fyrir Val 14-16 en í gær unnu þær KA/Þór 19-11 og GróttuKR 20-19. Þær lentu í öðru sæti í riðlunum og spila krossspil á morgun sunnudag kl. 11.00. Ekki er enn ljóst við hvað lið þær spila, fer eftir úrslitum leikja…