EVRÓ – Strákarnir farnir út
Snemma í morgun lögðu strákarnir okkar af stað frá Ásvöllum áleiðis til Portúgal. Á fyrsta áfangastað var ekki langt að fara, rétt suður í Keflavík. Frá Keflavík flugu þeir til Kaupmannahafnar og þaðan til Parísar og síðan til Portó. Frá Portó liggur leið þeirra til Aveiro, heimabæjar mótherjanna í Sao Bernardo og ættu þeir að vera komnir þangað um miðnætti eftir langt og strangt ferðalag.
Leikurinn við Sao Bernardo er á laugardaginn kl. 17.30 að staðartíma eða kl. 16.30 að hafnfirskum tíma. Ekki eru tök á að hafa leikinn í beinni hér á síðunni en við munum reyna að birta fréttir af stöðunnni meðan á leik stendur.
