EVRÓ – Mikið liggur við

Þó Haukar hafi byrjað handknattleiksvertíðina sl. sunnudag með því að innbyrða fyrsta titilinn sem í boði er þá hefst vertíðin af alvöru á laugardaginn kl.16:30 að Ásvöllum þegar þeir mæta CD S. Bernardo frá Portúgal. Um er að ræða geysilega mikilvægan leik, sem skiptir íslenskan handbolta miklu máli. Nái Haukar hagstæðum úrslitum gegn Portúgölunum þá hafa Hafnfirðingarnir tryggt sér þátttöku í “Champions League” sem er meistarakeppni Evrópu og svipar sú keppni til meistarakeppninnar í knattspyrnu þar sem sterkustu liðin keppa í riðlum fyrir útsláttakeppnina í mars.
Þegar hefur verið dregið í riðla og lenda Haukarnir gegn stórliðunum Barcelona og Magdeburg ásamt liðinu Vardar Skopje frá Makedóníu. Allt bendir til að Haukamenn muni ná takmarki sínu og tryggja sér þátttöku þó ekkert sé gefið í þeim efnum. Andstæðingarnir Sao Bernardo koma úr efstu áhugamannadeildinni í Portúgal. Ágreiningur kom upp í vor um þátttöku og réttindamál tengd meistaradeildinni sem endaði með þvi að handknattleikssamband Portúgals sendi sigurvegara áhugadeildarinnar til keppni en ekki meistarana sjálfa vegna fyrrgreinds ágreinings.

Sigri Haukar má gera ráð fyrir annasömum vetri fyrir þá, því ef allt gengur eftir, munu Haukamenn spila átta leiki í október einum í deild og meistarakeppninni. Meistarakeppnisriðillinn hefst 11. eða 12. október gegn Barcelona heima, síðan heimsækja Haukamenn Alfreð Gíslason í Magdeburg 18. okt. Að því loknu kemur hlé til 8. nóv þegar Skopje frá Makedóníu heimsækir Ásvelli. Því næst taka Haukamenn á móti Magdeburg á Ásvöllum þann 15. nóv. Viku síðar 22. nóv spila síðan Haukamenn í Barcelona og að lokum í Makedóníu 29. nóv. Þetta eru engin smálið og til mikils að vinna að komast í Meistaradeildina og veitir því ekki af stuðningi á Ásvöllum á laugardaginn.

Haukamenn og aðrir handboltaunnendur eru hvattir að fjölmenna á Ásvelli á laugardaginn kl. 16.30 til þess að tryggja hagstæð úrslit. Mikið liggur við.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…