Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Konukvöld Hauka 2008

    Hið árlega konukvöld Hauka verður haldið miðvikudaginn 30. apríl (fyrir þá sem ekki vita þá er það dagurinn fyrir 1. maí!!!:) Veislustjóri í ár verður Davíð Þór Jónsson. Meðal annars verður boðið upp á tískusýningu frá ZikZak. Húsið opnar klukkan 19:00. Hermann Ingi og félagi munu sjá um að leika fyrir dansi fram á rauða…

  • Tveir stórleikir í dag

    Við viljum minna enn og aftur á meistaraflokks leikinn í dag, Haukar – Afturelding á Ásvöllum kl. 14.15 . Strax að leik loknum munum við Haukafólk svo taka við Íslandsmeistaratitlinum og fagna eins og sönnum Haukamönnum sæmir. Það er FRÍTT á leikinn, fyrir ALLA. Svo seinna í dag, klukkan 18:00 er um að gera að…

  • 8 ár = 6 Íslandsmeistaratitlar…

    Í dag, fimmtudaginn 24. apríl 2008, eru liðin 8 ár síðan Haukar fögnuðu Íslandsmeistaratitli á Strandgötunni eftir 57 ára bið eftir titlinum. Það var annar Íslandsmeistaratitill félagsins í meistaraflokki karla en síðan þá hefur liðið unnið Íslandsmeistaratitilinn 5 sinnum til viðbótar og eru því Íslandsmeistaratitlarnir orðnir 7 samtals, þar af 6 á síðustu 8 árum. Á laugardaginn…

  • Bikarinn kemur á Ásvelli!! :)

        Bikarinn kemur á Ásvelli!     Haukar-Afturelding Laugardaginn 26. apríl, kl.14:15 Á Ásvöllum     Meistaraflokkur karla er búinn að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik.   Eftir síðasta heimaleik tímabilsins þar sem liðið mætir Aftureldingu verður verðlaunaafhending og bikarinn afhentur.   Eftir verðlaunaafhendinguna verður myndataka.   Allir iðkendur handknattleiksdeildarinnar eru beðnir um að…

  • Haukar í 4. sæti

    Stelpurnar okkar náðu 4. sætinu í deildinni með ágætum sigri á Gróttu 25-23.  Talsvert var um tæknifeila í leiknum, en góður varnarleikur og markvarsla gaf af sér ódýr mörk úr hraðaupphlaupum, sem tryggðu þennan sigur.  Næsti leikur hjá steplunum er 26. apríl á móti Val á Hlíðarenda kl. 16:00.   

  • Stjarnan – Haukar í kvöld

    Við minnum á leikinn hjá strákunum í kvöld klukkan 20:00 en þeir kíkja þá í heimsókn í Garðabæinn og mæta liðið Stjörnunnar í N1-deild karla. Strákarnir okkar sigruðu lið Akureyris í síðustu umferð á Ásvöllum með tveimur mörkum eftir að hafa náð mest níu marka forystu. Leikir Hauka og Stjörnunnar hafa undanfarið verið afar spennandi…

  • Haukabúningur til sölu.

    Vantar ykkur Haukabúninginn? Búningar verða til sölu á Ásvöllum fyrir heimaleiki meistaraflokkanna: Þriðjudaginn 15. apríl kl. 18-19 Laugardaginn 19. apríl kl. 16-17 Sunnudaginn 27. apríl kl. 15-16. Keppnisbúningurinn kostar kr. 6000. Unglingaráð Hauka

  • Haukar Íslandsmeistarar!

    Þá er það orðið öruggt, Haukar eru Íslandsmeistarar í N1-deild karla tímabilið 2007-2008.  Það varð öruggt eftir að liðið sigraði lið Framara með ellefu mörkum, 41-30. Staðan í hálfleik var 17 – 12 okkar mönnum í vil, en strákarnir mættu gífurlega einbeittir til leiks og voru búnir að skora 10 mörk á fyrstu 10 mínútunum…

  • Iðkendum Hauka boðið á völlinn

    Handknattleiksdeild Hauka býður iðkendur úr öllum deildum hjá knattspyrnufélginu Haukum á völlinn í kvöld, þegar Haukar taka á móti Fram kl. 19:15.  Mætið með félagsskírteinin og þið fáið aðgöngumiðann afhentan í afgreiðslunni. Við getum, með ykkar stuðningi, landað íslandsmeistartitlinum í kvöld. Með kveðju handknattleiksdeild Hauka

  • „Ekki slæm afmælisgjöf fyrir félagið“

    Áfram höldum við að fjalla um stórleikinn á morgun, leikur Hauka og Fram í N1-deild karla, 19:15 á Ásvöllum. Í dag ætlum við að fá “comment” frá þremur afburðafallegum drengjum í meistaraflokknum, við erum að tala um þá Gísla Guðmundsson, Jón Karl Björnsson og Kára Kristján Kristjánsson.  Jón Karl, hornamaður: „Það er rosalega góð stemmning…