8 ár = 6 Íslandsmeistaratitlar…

Í dag, fimmtudaginn 24. apríl 2008, eru liðin 8 ár síðan Haukar fögnuðu Íslandsmeistaratitli á Strandgötunni eftir 57 ára bið eftir titlinum. Það var annar Íslandsmeistaratitill félagsins í meistaraflokki karla en síðan þá hefur liðið unnið Íslandsmeistaratitilinn 5 sinnum til viðbótar og eru því Íslandsmeistaratitlarnir orðnir 7 samtals, þar af 6 á síðustu 8 árum.

Á laugardaginn leika strákarnir gegn liði Aftureldingar og eftir þann leik taka strákarnir við Íslandsmeistarabikarnum sem þeir tryggðu sér með sigri á Fram þann 11. apríl s.l.

Fyrsti Íslandsmeistaratitill Hauka kom árið 1943. Eftir það þurftum við Haukamenn að bíða í 57 ár en strákarnir okkar urðu fyrstu Íslandsmeistarar 21. aldarinnar með því að vinna Fram í fjórða úrslitaleik Íslandsmótsins 24. apríl 2000, sem var annar dagur páska það árið. Það var Guðmundur Karlsson sem var þjálfari Hauka þetta árið en hann hætti þjálfun liðsins eftir tímabilið og tók VIggó Sigurðsson við liðinu.

Viggó stjórnaði liðinu frá árinu 2000 þar til í janúar 2004. Á þeim tíma urðu strákarnir tvisvar sinnum Íslandsmeistarar. Þeir unnu KA í einni mögnuðustu úrslitarimmu fyrr og síðar árið 2001. KA menn unnu tvo fyrstu heimaleiki sína og okkar menn þá tvo heimaleiki sem við áttum. Þar sem KA hafnaði ofar í deildinni var oddaleikurinn á þeirra heimavelli þann 5. maí 2001. Þann leik unnu strákarnir okkar en þetta var einn af mögnuðustu úrslitaleikjum í manna minnum.

Árið eftir, 2002, kom ekki Íslandsmeistaratitill í hús á Ásvöllum. Þá vann KA Val í úrslitaviðureigninni eftir að hafa slegið okkar menn út í undanúrslitum.

Árið 2003 kom þriðji Íslandsmeistaratitill aldarinnar í hús á Ásvöllum. Þá voru það ÍRingar sem biðu lægri hlut gegn okkar mönnum, 3-1. Okkar strákar unnu fyrsta leikinn, sem fram fór á Ásvöllum, ÍRingar unnu svo annan leikinn, sem fram fór í Austurbergi. Síðustu tvo leiki viðureignarinnar unnu Haukamenn, fyrst á Ásvöllum og svo í Austurbergi þar sem Íslandsmeistarabikarinn fór á loft.

Í janúar 2004 lét Viggó Sigurðsson af störfum sem þjálfari liðsins og tók Páll Ólafsson, sem hafði verið aðstoðarmaður Viggós, við liðinu. Undir stjórn Palla urðu strákarnir Íslandsmeistarar 2004 og 2005. Árið 2004 unnu strákarnir okkar Val í úrslitaviðureigninni. Þeir komust í úrslitaviðureignina með því að vinna KA í undanúrslitum, unnu fyrsta leikinn, töpuðu öðrum og unnu svo oddaleikinn. Í úrslitaviðureigninni var hins vega aldrei spurning um hvort bræðrafélaganna yrði Íslandsmeistari því strákarnir okkar tóku þetta létt og unnu 3-0. Þetta var í fyrsta sinn til margra ára sem úrslitaviðureign fór 3-0.

Árið eftir var sama sagan upp á teningnum. Strákarnir byrjuðu á því að vinna FH 2-0 í 8 liða úrslitum. Í undanúrslitum unnu þeir svo Valsmenn 2-0 og í úrslitaviðureigninni mættu þeir ÍBV og unnu þá 3-0. 11 sigurleikir í úrslitakeppninni í röð því staðreynd, árangur sem seint verður sleginn.

Árin 2006 og 2007 kom ekki Íslandsmeistaratitill karla í hús á Ásvöllum. Árið 2006 var fyrirkomulagi Íslandsmótsins breytt og ekki leikin úrslitakeppni eins og gert hafði verið til fjölda ára. Í stað þess varð það lið sem efst var í deildarkeppni að loknu tímabili Íslandsmeistari. Árið 2006 var það Fram sem hafnaði í efsta sæti en okkar strákar í öðru sæti. Liðin voru jöfn að stigum en Fram hafði betur í innbirðisviðureignum. Árið 2007 var það Valur sem fagnaði Íslandsmeistaratitli. Það var vel við hæfi að þeir fögnuðu sigrinum á Ásvöllum eftir síðasta leik deildarinnar.

Í ár, 2008, kemur bikarinn aftur heim á Ásvelli. Strákarnir unnu Fram, 41-30, þann 11. apríl síðastliðin og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn. Það er Aron Kristjánsson sem er þjálfari liðsins nú.

Á þessum fyrstu átta árum 21. aldarinnar hafa strákarnir okkar því fagnað 6 af 9 Íslandsmeistaratitlum aldarinnar. Þetta er árangur sem erfitt er að toppa.

Strákarnir taka á móti bikarnum á Ásvöllum eftir leik sinn gegn Afturelding á laugardaginn. Leikurinn hefst klukkan 14:15. Að sjálfsögðu ætlum við Haukamenn að fjölmenna á leikinn og fagna eins og sönnum Haukamönnum sæmir.

HAUKAR ERU, HAFA ALLTAF VERIÐ OG MUNU ALLTAF VERA BESTIR!!!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…