„Ekki slæm afmælisgjöf fyrir félagið“

Áfram höldum við að fjalla um stórleikinn á morgun, leikur Hauka og Fram í N1-deild karla, 19:15 á Ásvöllum. Í dag ætlum við að fá “comment” frá þremur afburðafallegum drengjum í meistaraflokknum, við erum að tala um þá Gísla Guðmundsson, Jón Karl Björnsson og Kára Kristján Kristjánsson.

 Jón Karl, hornamaður: „Það er rosalega góð stemmning í hópnum og ætla menn að leggja sig alla í það að klára tiltilinn á föstudaginn “ Og hann býst við að Framarar mæti vitlausir til leiks „Þetta verður hörku leikur og held ég að Framarar mæti dýrvitlausir til leiks“

 Gísli Guðmundsson, markmaður: „Stemmningin í hópnum er mjög góð og allir fullir tilhlökkunar enda getum við tryggt okkur Íslandsmeistaratitilinn.  Það stendur ekkert annað til en að klára þetta á heimavelli á föstudagskveldi.“ Og hann segir að þetta yrði ekki slæm afmælisgjöf fyrir félagið en eins og flestir vita á Knattspyrnufélagið Haukar afmæli á laugardaginn,12.apríl.  „ Ekki slæm afmælisgjöf fyrir félagið sem á afmæli daginn eftir, laugardaginn 12.apríl. Það verður líka mjög skemmtilegt að fá að fagna í andlitið á Frömurum því þeir stálu af okkur deildarmeistaradollunni með góðri aðstoð dómara og ritara í desember, síðast liðnum.“  Og hann hvetur alla þá sem eiga kost á því að komast á leikinn að mæta „ Það væri sérstaklega gaman að fá alvöru mætingu á þennan leik og vinna titilinn við klassa umgjörð. “

Kári Kristján Kristjánsson, línumaður: „ Stemmingin fyrir þessum leik er eitrað. Við bíðum fullir eftirvæntingar fyrir þennan leik og ætlum við að klára mótið ekki seinna en strax á föstudaginn.“ Kári talar síðan um eitthvern söngfugl „ Það hvíslaði líka að mér einn lítill söngfugl að fólk ætlaði að flykkjast á völlinn og er enginn afsökun fyrir því að mæta ekki á leikinn. Það kemur því í ljós og mun sjást hverjir eru Haukamenn í raun og veru á föstudaginn því að fólkið er okkar 8-maður og myndi það án efa skila miklu til okkar inn á völlinn, plús það að það er ekkert varið í að vinna svona stórleik ef það er enginn til að gleðjast með okkur. “

Það er greinilegt að leikmenn liðsins bíða í örvæntingu eftir þessum leik, enda ekkert minna undir en STÓRI titilinn.

Allir á völlin á morgun – ÁFRAM HAUKAR

| HAUKAR – Fram – Ásvellir – Á Morgun föstudag – Klukkan 19:15 |  Sigur ? Íslandsmeistarar!

    – Arnar Daði Arnarsson skrifar.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…