Sara Odden áfram í herbúðum Hauka

Sænsk-norska skyttan Sara Odden hefur framlengt samning sinn við Hauka. Sara kom til lið við Hauka frá Svíþjóð haustið 2019 og hefur verið lykilmaður í liðinu síðan. Sara sem er 25 ára hefur látið mikið til sín taka á tímabilinu og er markahæsti leikmaður liðsins ásamt því að vera sterk í miðju varnarinnar. Haukar hafa […]

Lykileikmenn endurnýja samninga við Hauka

Birta Lind er 21 árs vinstri hornamaður sem er uppalin hjá félaginu og hefur á síðustu árum stigið mikið upp og er hún ein af mikilvægustu leikmönnum liðsins þrátt fyrir ungan aldur. Það sem liðið er af tímabilinu hefur Birta Lind verið iðin við markaskorun  og með markahæstu leikmönnum liðsins. Ragnheiður er 26 ára reynslumikill […]

Guðmundur Bragi lánaður til Aftureldingar

Haukar hafa lánað hinn efnilega Guðmund Braga Ástþórsson til Aftureldingar. Guðmundur Bragi hefur verið að fá fleiri og fleiri tækifæri hjá meistaraflokki Hauka ásamt því að vera lykilmaður í U-liði félagsins þar sem hann er einn markahæsti leikmaður Grill 66 deildarinnar. Sökum meiðsla hjá leikmönnum sínum sóttist Afturelding eftir því að fá Guðmund að láni […]

Ungir og efnilegir leikmenn framlengja við Hauka

Nú á dögunum framlengdu ungir og efnilegir Haukastrákar samninga sína við félagið en þetta eru þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson, Jakob Aronsson, Jón Karl Einarsson, Kristófer Máni Jónasson, Magnús Gunnar Karlsson og Þorfinnur Máni Björnsson. Guðmundur Bragi sem er 18 ára miðjumaður og skytta kom vel inn í meistaraflokkslið Hauka áður en Covid pásan skall á […]

Stefán Rafn kominn heim

Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Stefán Rafn Sigurmannsson um að snúa til baka til félagsins eftir 8 ár í atvinnumennsku. Stefán Rafn þarf vart að kynna fyrir Haukafólki en hann varð þrítugur á síðasta ári og er uppalinn í rauða Haukabúningnum en hann kemur til liðs við Hauka frá Pick Szeged. Stefán hóf að […]

Ágæti stuðningsmaður – Áfram gakk!

Árið 2020 er að baki, ár sem hefur reynst íþróttahreyfingunni hvar sem er í heiminum þungt í skauti. Við hjá Handknattleiksdeild Hauka höfum ekki farið varhluta af þessu ástandi sem á sér ekki fordæmi. Ekki þýðir þó að dvelja of lengi við það sem er að baki, heldur líta bjartari augum á þær áskoranir og […]

Handboltinn fer af stað á ný

Eftir langa bið fer handboltinn loksins af stað á ný eftir Covid pásu. Grill 66 deild karla hefst í kvöld, föstudag, þegar strákarnir okkar halda út á Seltjarnarnes og spila við Kríu kl. 20:30 og er leikurinn sýndur í beinni vefútsendingu sem nálgast má á Facebook síðu handboltans í Haukum þegar nær dregur leik. Strákarnir […]

Elín Klara semur við Hauka

Elín Klara Þorkelsdóttir hefur samið við handknttleiksdeild Hauka og mun hún spila með meistaraflokki kvenna þegar að mótið hefst að nýju. Elín Klara er 16 ára uppalin Haukastúlka og kemur hún úr sigursælum 2004 árgang sem hefur raðað inn tittlum síðustu ár. Elín Klara mun bætast í hóp ungra og efnilegra leikmanna sem eru samningsbundnir […]

Landsliðshópar yngri landsliða í handbolta valdir

Nú á dögunum voru landsliðshópar yngri landsliða Íslands í handbolta valdir fyrir verkefni sumarsins. Á næstu dögum funda þjálfarar liðanna með leikmönnum og fara yfir verkefni sumarsins ásamt undirbúningi. Ekki er um að ræða æfingar að þessu sinni, stórir hópar leikmanna eru valdir fyrir fundina til að sem flestir fái kynningu á því sem framundan […]

Afrekslína Hauka vorönn 2021

Afrekslína Hauka fyrir veturinn 2020-2021 heldur áfram á nýju ári og verður starfið það sama og var á haustönninni. Sparta þjálfunarstöð sér áfram um styrktarþjálfunina og í bóklegu tímunum verða fleiri gestafyrirlesarar ásamt því að hver íþróttagrein verður með sérhæfða bóklega tíma um þætti sem snúa að sinni grein. Afrekslína Hauka samanstendur annars vegar af […]