Haukar léku til úrslita í bikarkeppninni 2026 bæði í karla og kvenna flokki um helgina.
Stelpurnar voru ríkjandi bikarmeistarar og gerðu hvað þær gátu til að verja titilinn. Valur var þó of stór biti og unnu þær Haukastelpur 19-23 og tóku bikarinn með sér heim á hlíðarenda.
Seinni leikurinn á laugardeginum var úrslitaleikur hjá strákunum á móti ÍR. Haukastrákarnir leiddu allan leikinn, staðan í hálfleik var 14-6 og endaði leikurinn 28:21 fyrir Haukum.
Þetta er 8 Bikarmeistaratitill Hauka en síðasti bikarmeistaratitill hjá karla liðinu kom á móti ÍR 2014.
Maður leiksins var Freyr Aronsson.