Afrekslína Hauka vorönn 2021

Afrekslína Hauka fyrir veturinn 2020-2021 heldur áfram á nýju ári og verður starfið það sama og var á haustönninni. Sparta þjálfunarstöð sér áfram um styrktarþjálfunina og í bóklegu tímunum verða fleiri gestafyrirlesarar ásamt því að hver íþróttagrein verður með sérhæfða bóklega tíma um þætti sem snúa að sinni grein.

Afrekslína Hauka samanstendur annars vegar af Afreksskóla Hauka, fyrir 8. – 10. bekkinga, og hins vegar Afrekssviði Hauka og Flensborgarskóla, sem er ætlað framhaldsskólanemum í Flensborg en er einnig opið nemendum úr öðrum framhaldsskólum sem og öðrum metnaðarfullum íþróttamönnum sem vilja markvissa fræðslu og kennslu á sviði styrktarþjálfunar og handbolta/fótbolta/körfubolta.

Aðalþjálfarar Afrekslínu Hauka eru:
Israel Martin, körfubolti Afreksskóli og Afrekssvið.
Emil Barja, körfubolti Afreksskóli og Afrekssvið.
Aron Kristjánsson, handbolti Afreksskóli og Afrekssvið
Björgvin Páll Gústafsson, handbolti Afreksskóli og Afrekssvið
Igor Kostic, fótbolti Afreksskóli og Afrekssvið
Helga Helgadóttir, fótbolti Afreksskóli og Afrekssvið

Styrktarþjálfun í höndum þjálfara Spörtu þjálfunarstöðvar

Afreksskólinn:

Kennsla fer fram á eftirfarandi tímum: ATH! Tímar gætu breyst vegna sóttvarnaraðstæðna
Mánudagar kl. 15:30-16:50 – Bóklegur tími fyrir iðkendur fædda 2005 og 2006.
Föstudagar kl. 15:00-16:00 – Tækniþjálfun hjá iðkendum fædd 2005, 2006 og 2007.

Styrktarþjálfun – Miðvikudagar 17:00 – 18:00.

Afrekssvið:

Hefst um leið og leyfi verður gefið á æfingar.
Tímar verða gefnir út þegar stundatöflur í Flensborg verða klárar. Stefnt er að því að hafa tímana á svipuðum tímum og fyrir áramót.

Starfið fer í gang 6. janúar með styrktaræfingu hjá Afreksskólanum en þann dag eru sóttvarnaraðgerðir og eru því tímarnir öðruvísi. Fótboltinn mætir 16:00 – 17:00 og handbolti og körfubolti 17:00 -18:00.

Kostnaður
Önnin í Afreksskóla Hauka kostar 12.500 fyrir 8. bekk og önnin kostar 22.500 kr. fyrir 9. og 10. bekk.

Verðið fyrir önnina í Afrekssviðinu hefur verið lækkað verulega til að koma við móts við þær breytingar sem þurfti að gera á haustönninni vegna æfingabanns sökum Covid og er gjaldið fyrir vorönnina 9.900 kr.

Umsóknarfrestur
Búið er að opna fyrir skráningar í Afreksskólann og skrá þarf í gegnum Mínar síður á vef Hafnarfjarðarbæjar. Nánari upplýsingar veitir Herbert Ingi Sigfússon á netfanginu herbert@haukar.is.