2.flokkur í beinni á Haukar-TV
Haukar-TV mun í kvöld sýna leik Hauka og Selfoss klukkan 20:00 en um er að ræða undanúrslitaleik liðana. Akureyri er komin í Úrslitaleikinn en þeir sigruðu FH.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Haukar-TV mun í kvöld sýna leik Hauka og Selfoss klukkan 20:00 en um er að ræða undanúrslitaleik liðana. Akureyri er komin í Úrslitaleikinn en þeir sigruðu FH.
Kæru foreldrar/forráðamenn Nú er komið að endurgreiðslu fyrir handboltann. Það sem þið foreldrar þurfið að gera er að senda tölvupóst á gudbjorg@haukar.is með eftirfarandi upplýsingum:1. Nafni iðkanda2. Kennitölu iðkanda3. Nafni greiðanda4. Kennitölu greiðanda5. Reikningsnúmeri og kennitölu greiðandaMillifært er á þá sem hafa greitt gjaldið nú þegar (munið að senda reikningsnúmerið með). Þeir sem hafa skipt gjaldinu…
Á morgun, þriðjudag, taka strákarnir í 2. flokki á móti Selfossi í 4ja liða úrslitum. Leikurinn hefst kl. 20.00 og verður leikurinn með meistaraflokks umgjörð. Nái strákarnir að sigra spila þeir um gullið. Selfoss er með sterkt lið og skorum við á allt Haukafólk að mæta á Ásvelli og hvetja okkar menn til sigurs. Áfram…
Eldra ár 5. flokks karla í handbolta lék sitt 5. og síðasta mót í vetur nú um helgina. Eins og á öðrum mótum vetrarins stóðu strákarnir sig með prýði og vantaði bara hársbreidd upp á að þeir ynnu mótið en þeir töpuðu fyrir Íslandsmeisturum Selfoss í æsispennandi leik þar sem Selfoss skoraði úr hraðaupphlaupi á…
Fyrsti titillinn hjá handboltanum þetta árið kom í hús nú áðan þegar Haukastelpurnar í 3ja flokki urðu Íslandsmeistarar með sigri á HK 35-33 eftir æsispennandi framlengdan leik. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 30-30 en HK var yfir í hálfleik 16-14. Maður leiksins var valin Elsa Björg Árnadóttir leikmaður Hauka en hún skoraði 7 mörk…
Unglingaflokkur Haukastelpna í handbolta vann góðan sigur á Gróttustelpum í gær en leikurinn endaði 38-32. Fyrri hálfleikurinn í gær var í járnum og var staðan 15-15 í hálfleik. Haukastelpurnar komu svo tvíelfdar inn í seinni hálfleikinn og var aldrei spurning um hvort liðið ætlaði sér sigur í þessum leik. Með þessum sigri eru stelpurnar komnar…
Tvær handboltakonur úr Haukum fóru til Serbíu í dag með U-19 ára landsliðinu til að taka þátt fyrir Íslands hönd í undankeppni fyrir HM. Þetta eru þær Karen Helga Sigurjónsdóttir og Viktoría Valdimarsdóttir. Liðið er þar í riðli með Finnlandi, Spáni og Serbíu. Leikjaplan Íslands: Föstudagur 22.apríl kl.17.00 Ísland – Serbía Laugardagur 23.apríl kl.13.00 Ísland…
Það var mikið fjör á Ásvöllum dagana 18. – 20. apríl en þá voru haldnar handbolta – og körfuboltabúðir fyrir unga iðkendur. Hátt á annað hundrað krakkar tók þátt og var almenn ánægja með þetta framtak. Til að mynda barst okkur þessi tölvupóstur: „Mig langar að þakka kærlega fyrir frábærar handboltabúðir hjá ykkur í Haukunum….
Haukar eiga nokkra fulltrúa í úrslitakeppni yngri flokkanna í handboltanum. Fyrstu 8 liðin í deildarkeppninni fara í úrslitakeppnina, þar af gefa fyrstu fjögur sætin heimaleikjaréttinn. Einn sigur þarf til að komast áfram í undanúrslit og svo annan sigur til að komast í að spila um Íslandsmeistaratitilinn í Vodafonehöllinni helgina 30. apríl. * Úrslit 3. flokkur…
Handboltabúðir Hauka verða haldnar 18. – 20. apríl næstkomandi á Ásvöllum. Fyrir alla krakka í 1. – 7. bekk Verð kr. 4.500 ef greitt er fyrir 16. apríl en eftir það kostar kr. 5.000 Afsláttur er fyrir systkini (2. barn 50% gjald og 3ja barn frítt) Dagskrá frá kl. 09:00 – 12:00 Barnapössun frá kl….