Frábær þátttaka í handbolta – og körfuboltabúðunum

Áfram Haukar! Glæsilegur hópur krakka sem tók þátt í handboltabúðunum nú á dögunumÞað var mikið fjör á Ásvöllum dagana 18. – 20. apríl en þá voru haldnar handbolta – og  körfuboltabúðir fyrir unga iðkendur. Hátt á annað hundrað krakkar tók þátt og var almenn ánægja með þetta framtak. Til að mynda barst okkur þessi tölvupóstur: „Mig langar að þakka kærlega fyrir frábærar handboltabúðir hjá ykkur í Haukunum. Börnin mín mættu bæði 6 og 11 ára og voru svo ánægð allan tímann. Gísli og leikmennirnir eiga hrós skilið fyrir flott námskeið með glæsilegri umgjörð. Það var svo gaman að sjá hvað þau voru góð og natin við krakkana og skipulagið var til fyrirmyndar“ (Helga Huld).

Haukar vilja þakka öllum sem að þessu fína framtaki stóðu og ekki síst krökkunum fyrir góða mætingu og mikinn áhuga. Það þarf sannarlega ekki að kvíða framtíðinni í handbolta og körfubolta hjá félaginu miðað við þessa flottu krakka sem vonandi munu halda áfram að æfa og einn góðan veðurdag vera í meistaraflokki hjá Haukum.

Haukar óska öllum gleðilegra páska.

Smelltu á „lesa meira“ til að sjá fleiri myndir (Haukamyndir: Freyr Brynjarsson).

Hér að neðan gefur að líta nokkrar myndir úr handboltabúðunum en myndir úr körfuboltabúðunum eru því miður ekki fyrir hendi þetta skiptið.

 

 

 

 

 

 

  

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…