Til Hauka frá Molde í Noregi
Halldór Harri Kristjánsson hefur ákveðið að ganga til liðs við handknatttleiksdeild Hauka og taka þátt í uppbyggingarstarfi félagsins. Halldór oftast kallaður Harri hefur mikla reynslu í þjálfun og hefur síðustu 3 árin þjálfað Molde í Noregi. Harri verður hluti af þjálfarateymi mfl. kvenna ásamt Einari Jónssyni aðalþjálfara liðsins. Ásamt þjálfun í meistaraflokki mun Harri stýra…
