Haukar – FH í kvöld

Í kvöld fer fram síðasta umferð N1-deildar karla og er sannkallaður stórleikur á dagskrá þegar okkar drengir taka á móti FH í Schenkerhöllinni á Ásvöllum kl.19.30. Leikurinn skiptir i sjálfu sér litlu máli fyrir strákana okkar sem hafa þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn en FH-ingar þurfa að vinna leikinn til að tryggja sér heimaleikjaréttinn í undanúrslitum […]

Handbolti: Tap hjá stelpunum

Stelpurnar okkar í handboltanum spiluðu í gær við HK í Kópavogi í N1-deild kvenna. Leikurinn endaði með 31-34 tapi hjá okkar stúlkum en úrslitin skiptu í raun litlu máli upp á framhaldið því það er þegar orðið ljóst að Haukar komast ekki í úrslitakeppni deildarinnar því liðið átti ekki lengur möguleika á sjötta sætinu fyrir […]

Deildarmeistarar

Haukar urðu í kvöld deildarmeistarar karla í handbolta eftir sigur á Aftureldingu 21-19 í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í kvöld! Leikurinn sjálfur var ekki stórkostlega spilaður en það skiptir ekki nokkru máli nú þegar ljóst er að okkar drengir hafa unnið deildina. Frábær sigur og þriðji bikarinn á þessu tímabili í hús. Til hamingju Haukar!

Haukar taka á móti Aftureldingu á föstudagskvöld

Annað kvöld (föstudagskvöld) fer fram næst síðasta umferð N1-deildar karla í handbolta og þá taka Haukar á móti Aftureldingu í Schenkerhöllinni á Ásvöllum kl.19:30. Með sigri í leiknum gætu Haukar tryggt sér deildarmeistaratitilinn nái FH ekki að vinna HK á sama tíma í Kaplakrika.  Vinni FH-ingar hins vegar sinn leik eða ef okkar strákar tapa […]

Einir á toppnum

Haukar eru einir á toppnum eftir leiki gærkvöldsins í N1-deild karla í handbolta. Okkar menn unnu öruggan sigur á HK í Digranesi 26-20. Sigurinn var mjög öruggur eins og tölurnar gefa til kynna. Einungis var jafnræði með liðunum fyrstu 10 mínútur leiksins en eftir það höfðu okkar menn forystu á bilinu 3-6 mörk alllt til […]

Haukar mæta HK í Digranesi kl.19:30 í kvöld

Spennan heldur áfram í N1-deild karla í handbolta í kvöld þegar heil umferð fer fram. Við Haukar mætum HK í Digranesinu kl.19:30 og er leikurinn eins og flestir aðrir í þessari jöfnu deild, mjög mikilvægur! HK er í þriðja sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir Haukum og FH sem eru í 1.-2. sæti. Með sigri […]

Frábær sigur á Akureyri

Haukar unnu Akureyri í gærkvöld í N1-deildinni í handbolta karla með 26 mörkum gegn 18. Sigurinn kom kannski ekki á óvart en hversu þægilegur hann var kom hins vegar mjög á óvart því Akureyringar hafa á að skipa öflugu liði sem hefur verið á miklu skriði undanfarið. Frábær vörn og ótrúleg markvarsla Arons Rafns Eðvarðssonar […]

Haukar mæta Akureyri í kvöld! – Stefán Rafn í landsliðið

Í kvöld er sannkallaður stórleikur á dagskrá í N1-deild karla í handbolta þegar okkar menn í Haukum taka á móti Akureyri kl.18:30 (ATH ÓVENJULEGAN LEIKTÍMA) í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Haukar sitja í 1.-2. sæti deildarinnar með 23 stig ásamt FH en Akureyri er einungis stigi á eftir þessum liðum með 22 stig. Þar á eftir […]

Slæmt tap gegn Gróttu

Strákarnir okkar geta laglega nagað sig í handbökin eftir slæmt tap gegn Gróttu í N1-deild karla í handbolta í gærkvöld gegn botnliði Gróttu. Fyrirfram hefði mátt búast við auðveldum sigri okkar manna þar sem Haukar voru efstir í deildinni en drengirnir af Seltjarnesi voru neðstir og einungis búnir að ná sér í eitt stig sem […]

Tap í mikilvægum leik

Staða okkar stúlkna í Haukum í N1-deild kvenna í handbolta versnaði töluvert í dag eftir tap gegn KA/Þór. Leikurinn var afar mikilvægur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Lokatölur urðu 26-22 fyrir stúlkunum að norðan en jafnt var í leikhléi 12-12.     Fyrir leikinn voru Haukar og KA/Þór jöfn í 6. – 7. sæti […]