Handbolti: Tap hjá stelpunum

HaukarStelpurnar okkar í handboltanum spiluðu í gær við HK í Kópavogi í N1-deild kvenna. Leikurinn endaði með 31-34 tapi hjá okkar stúlkum en úrslitin skiptu í raun litlu máli upp á framhaldið því það er þegar orðið ljóst að Haukar komast ekki í úrslitakeppni deildarinnar því liðið átti ekki lengur möguleika á sjötta sætinu fyrir leikinn. Stelpurnar eiga nú einn leik eftir í deildinni og er hann gegn ÍBV á laugardag í Schenkerhöllinni kl.16:00. Hvort sem Haukar vinna eða tapa leiknum endar liðið í 8. sæti deildarinnar en mikilvægt er fyrir stelpurnar að fá góðan stuðning í síðasta leik deildarinnar til að enda tímabilið á jákvæðum nótum.