Nú skal fylla kofann!!!

Þriðji leikur Hauka og HK verður leikinn í dag, mánudag og hefst hann kl. 19:30 í Schenkerhöllinni. Haukamenn eru komnir með bakið upp við vegg og þá er fínt að nota vegginn til þess að spyrna sér frá en þeir þurfa þín hjálp. Mætum öll í rauðu og styðjum Haukastrákana til sigurs því ekki viljum við […]

Komnir með bakið upp að vegg

Haukar eru komnir með bakið upp að vegg í einvígi sínu við HK í 4-liða úrslitum N1-deildar karla um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir tap í kvöld fyrir HK í Digranesinu 21-18. Líkt og í fyrsta leik liðanna á miðvikudagskvöldið sl. var leikurinn mjög jafn og spennandi allt þar til í stöðunni 15-15 þegar 10 mínútur […]

HK – Haukar leikur 2 – Allir á völlinn!

Á morgun föstudag leikur meistaraflokkur karla sinn annann leik í undanúrslitum Íslandsmótsins. Nú er leikið í Digranesi og hest leikurinn kl. 19:30. Það gekk ekki nægilega vel í fyrsta leiknum sem endaði með tapi en strákarnir eru staðráðnir í að láta það ekki endurtaka sig. Til að hjálpa strákunum í baráttunni er um að gera […]

Slæm byrjun í úrslitakeppninni

Haukar fengu heldur betur ekki óska byrjun í úrslitakeppninni N1-deildarinnar í handbolta karla í kvöld þegar þeir tóku móti HK. Gestirnir úr Kópavogi gerðu sér lítið fyrir og unnu okkar drengi með 30 mörkum gegn 24 í Schenkerhöllinni. Haukar voru með yfirhöndinna lengst af leik eða nánar tiltekið í 45 mínútur, það var ekki fyrr […]

Adam í U-18

Adam Haukur Baumruk var um síðustu helgi að leika með U-18 ára lansdsliði Íslands í undankeppni EM í Tyrklandi. Adam og félagar tryggðu sér sæti á EM með því að leggja heimamenn, Englendinga og Moldavíu. Adam var á meðal markahæðstu manna í öllum þremur leikjunum auk þess að leika stórt hlutverk í varnarleik íslenska liðsins. […]

Góður félagi fallinn

Látinn er góður vinur og félagi, Sigurður Júlíusson. Sigurður gékk til liðs við félagið 1959 og tók þá við þjálfun 3. flokks karla í handknattleik. Árangurinn lét ekki á sér standa, enda maðurinn einn snillinganna úr FH sem gerðu garðinn frægan á þessum  árum. Báðir flokkarnir, A og B, hömpuðu Íslandsmeistaratitlum þetta árið og vöktu […]

Einar Ólafur í U-20

Einar Ólafur Vilmundarson markmaður 2. flokks og þriðji markmaður meistaraflokks spilaði nú um páskana með u-20 ára landsliði Íslands í undakeppni EM. Einar og félagar unnu riðilinn sinn sem spilaður var hér á Íslandi og eru þar af leiðandi búnir að tryggja sér sæti á EM sem haldið verður í sumar. Heimasíðan óskar Einari til hamingju […]

Fjórar í U20

  Valinn hefur verið 16 manna hópur u-20 ára landsliðs kvenna sem mun leika í undankeppni HM í Tyrklandi helgina 6.-8. Apríl. Leikið verður í Antalya. Ísland er þar í riðli ásamt Rúmeníu, Rússlandi og Tyrklandi og komast tvö lið áfram í lokakeppnina sem leikin verður í Tékklandi í sumar.  Hópurinn hélt utan í gær. […]

Einar Ólafur í U-20

Einar Ólafur Vilmundarson markmaður 2. flokks og 3. markmaður meistaraflokks spilaði nú um páskana með u-20 ára landsliði Íslands í undakeppni EM. Einar og félagar unnu riðilinn sinn sem spilaður var hér á Íslandi og eru þar af leiðandi búnir að tryggja sér sæti á EM sem haldið verður í sumar. Heimasíðan óskar Einari til […]

Handhafar þriggja titla

Unglingaflokkur kvenna í handknattleik eru ríkjandi Íslandsmeistarar frá 2011 einnig urðu þær bikarmeistara 2012 og nú síðast deildarmeistarar um síðustu mánaðarmót. Í lok Apríl hefst svo titilvörnin um Íslandsmeistaratitilinn 2012. Þessar stúlkur eru nú að skila sér upp á meistaraflokk og er því björt framtíð í kvennahandboltanum hjá Haukum.