Haukar – FH í kvöld

Allir á völlinn!

Í kvöld fer fram síðasta umferð N1-deildar karla og er sannkallaður stórleikur á dagskrá þegar okkar drengir taka á móti FH í Schenkerhöllinni á Ásvöllum kl.19.30.

Leikurinn skiptir i sjálfu sér litlu máli fyrir strákana okkar sem hafa þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn en FH-ingar þurfa að vinna leikinn til að tryggja sér heimaleikjaréttinn í undanúrslitum úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn.

Að sjálfsögðu er einnig spilað upp á stolltið þegar þessi lið mætast, ætla strákarnir okkar sér ekki að gefa FH-ingum neitt í kvöld og munu spila til sigurs.