Haukar B í úrslitum á morgun

Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistara B-liða er á morgun laugardag og eiga Haukar þar verðugan fulltrúa. B liðið hefur farið á kostum í vetur og unnu til að mynda undanúrslitaleikinn gegn Keflavík örugglega með 16 stigum. Þetta verður í þriðja skiptið sem að Haukar B spila til úrslita á síðustu sjö árum og alltaf hefur andstæðingurinn verið KR.

Nú óska liðsmenn Hauka B eftir þínum stuðningi. Það litla sem að þarf að gera er að mæta í pallana í Íþróttahúsi Kennaraháskólans og öskra sig hásan. Tryggjum Haukum B þann stuðning sem þarf til að koma Íslandsgripnum heim í Hafnarfjörð.