Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Haukar og FH mætast á morgun

    Haukar munu mæta FH í æfingaleik á morgun en leikurinn fer fram í Kórnum í Kópavogi. Búast má við spennandi viðureign enda tvö Hafnarfjarðarlið sem eigast þarna við. Síðasti leikur Hauka var gegn Keflavík síðasta sunnudag þar sem að þeir náðu að sigra með tveimur mörkum gegn engu þó svo að það vantaði marga lykilmenn…

  • Góður sigur á Keflavík

    Snemma í gærmorgun fór fram æfingaleikur í Reykjaneshöllinni þegar Pepsideildarliðin, Keflavík og Haukar mættust. Haukar fóru með 2-0 sigur úr bítum í leiknum með mörkum frá sóknarmönnunum Arnari Gunnlaugssyni og Ómari Karli Sigurðssyni. Það vantaði helling í lið Hauka í gær, Guðjón Pétur er í Danmörku, Jónas Bjarnason er á EM í Austurríki, Guðmundur Mete…

  • Hvað segir Guðjón í Danmörku?

    Eins og greint var frá hér á Haukar.is mun Guðjón Pétur Lýðsson dvelja í Danmörku næsta mánuðinn. Þar mun hann búa hjá föður sínum í Århus og æfa með 1.deildarliðinu Brabrand sem sitja í neðsta sæti deildarinnar þegar 15 umferðir eru búnir af deildinni og er nú vetrarfrí í Danmörku. Í liði Brabrand leikur Sigmundur…

  • Tvær frá Haukum í úrtaki hjá KSÍ

    Um næstu helgi fara fram úrtaksæfingar hjá A-landsliði kvenna, U-19 og U-17 ára landsliðum kvenna. Haukar eiga tvo fulltrúa í þeim hópum. Í U-19 ára landsliðinu er Þórhildur Stefánsdóttir sem gekk til liðs við Hauka frá HK fyrir áramót. Í U-17 ára landsliðinu er síðan Lára Rut Sigurðardóttir. Svo er að sjálfsögðu Sara Björk Gunnarsdóttir…

  • Jafntefli gegn ÍBV

    Í dag mættust Pepsi-deildar félögin, Haukar og ÍBV í Kórnum í fyrsta æfingaleik Hauka á þessu ári. Bæði lið voru með sín sterkustu lið í leiknum en honum lauk með jafntefli, 1-1. Það var Pétur Örn Gíslason sem kom Haukum yfir snemma leiks eftir hornspyrnu frá Hilmari Trausta Arnarssyni.   Eyjamenn voru ekki lengi að…

  • Haukar búnir að skila inn leyfisgögnum sínum

    „Komnir til að sigra, komnir til að vera …“ sungu Páll Rósinkranz og Haukakórinn um árið.  Haukar hafa skilað leyfisgögnum sínum, öðrum en fjárhagslegum, fyrir keppnistímabilið 2010.  Þar með hefur helmingur leyfisumsækjenda í efstu tveimur deildum karla skilað, alls 12 félög af 24, en Reynir Sandgerði, sem leikur í 2. deild, hefur einnig óskað eftir…

  • Guðjón Pétur heldur til Danmerkur

    Í nótt flaug miðjumaðurinn Guðjón Pétur Lýðsson til Danmerkur en þar mun hann dvelja í mánuð og nærast og dveljast hjá föður sínum, Lýði Skarphéðinssyni. Guðjón verður ekki ráðalaus í Danmörk en hann mun æfa með 1.deildarliðinu Brabrand á meðan dvölinni stendur og leika með þeim æfingaleiki en nú er vetrafrí í dönsku deildinni.  …

  • Haukar mæta ÍBV á laugardaginn

    Haukar munu mæta ÍBV í Kórnum næstkomandi laugardag en flautað verður til leiks kl. 16.30. Þetta verður því  í annað skiptið sem þessi lið mætast með stuttu millibili en síðast fóru Haukar með 3-2 sigur af hólmi með mörkum frá Arnari Gunnlaugssyni, Hilmari Trausta og Enoki Eiðssyni.    Þetta er fjórði æfingaleikur liðsins og jafnframt…

  • Fimm frá Haukum í U-17 ára úrtaki KSÍ

    Um nætu helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U-17 ára karlalandsliði Íslands. Gunnar Guðmundsson þjálfari liðsins hefur valið hópinn en Gunnar hefur þjálfað U-17 ára landslið Íslands undanfarið ár en áður þjálfaði hann meistaraflokkslið HK í Landsbankadeildinni. Í U-17 eiga Haukar fimm fulltrúa sem verður að teljast mjög gott en Haukar eiga flesta fulltrúa í hópnum…

  • Hvað segir Ásgeir Þór Ingólfsson?

    Nú er komið að því að fara heyra í leikmönnum meistaraflokks karla í knattspyrnu en þeir eru þessa dagana í stífu æfingaprógrami og fá síðan gott jólafrí. Þeir munu síðan mæta endurnærðir eftir áramót í meiri læti en strax í febrúar hefst Deildarbikarinn. Næstur í viðtal er hinn efnilegi Ásgeir Þór Ingólfsson sem hefur aldeilis…