Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Hvað segir Hilmar Geir Eiðsson ?

    Nú er komið að því að fara heyra í leikmönnum meistaraflokks karla í knattspyrnu en þeir eru þessa dagana í stífu æfingaprógrami og fá síðan gott jólafrí. Þeir munu síðan mæta endurnærðir eftir áramót í meiri læti en strax í febrúar hefst Deildarbikarinn. Í dag munum við fá Hilmar Geir Eiðsson leikmann Hauka frá unga…

  • Haukar – FH á laugardaginn / Frestað

    Á laugardaginn næstkomandi mun meistaraflokkur karla mæta Íslandsmeisturunum úr FH í æfingarleik í Kórnum en leikurinn hefst klukkan 16:30. Er þetta síðasti leikur liðsins fyrir áramót en liðið hefur leikið þrjá æfingaleiki áður í vetur. Haukar sigruðu fyrst Víking Reykjavík, töpuðu síðan gegn Fjölni og unnu nú síðast Eyjamenn. Arnar Gunnlaugsson spilandi aðstoðarþjálfari liðsins hefur…

  • Riðlaskiptingin fyrir Deildarbikar KSÍ er orðin klár

    Mótanefnd KSÍ hefur gefið út riðlaskiptingu og fyrirkomulag Deildarbikarkeppni KSÍ árið 2010 en þar eiga Haukar þrjú lið. Leikið er í þremur deildum, jafnt í körlum og konum. Ekki er enn komið á hreint hvenær mótið hefst, en það mun líklegast vera seinni partinn í febrúar. Karlalið Hauka sem eins og flestir vita mun spila…

  • Haukamenn báru sigurorð af ÍBV

    Haukar mættu ÍBV í æfingaleik í Kórnum í dag en leikurinn endaði með 3-2 sigri Haukamanna. Þetta var þriðji æfingaleikur liðsins í vetur en áður höfðu strákarnir unnið 2-1 sigur á Víking R. og tapað 2-1 gegn Fjölni. Flautað var til leiks kl. 16.30 og var leikurinn ansi fjörugur en fjölmargir stuðningsmenn liðsins höfðu lagt…

  • Þrír frá Haukum í U-16 ára úrtaki KSÍ

    Um helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U-16 ára karlalandsliði Íslands. Freyr Sverrisson þjálfari liðsins hefur valið hópinn en Freyr þjálfar einnig yngri flokka hjá Haukum. Í U-16 eiga Haukar þrjá fulltrúa en það eru þeir, Þórður Jón Jóhannesson, Haukur Björnsson og markvörðurinn Daníel Þór Ingason. Æfingarnar fara fram í Kórnum um helgina. Um er að…

  • Þrír frá Haukum í U-16 ára úrtaki KSÍ

    Um helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U-16 ára karlalandsliði Íslands. Freyr Sverrisson þjálfari liðsins hefur valið hópinn en Freyr þjálfar einnig yngri flokka hjá Haukum. Í U-16 eiga Haukar þrjá fulltrúa en það eru þeir, Þórður Jón Jóhannesson, Haukur Björnsson og markvörðurinn Daníel Þór Ingason. Æfingarnar fara fram í Kórnum um helgina. Um er að…

  • Æfingaleikur gegn ÍBV á laugardag

    Meistaraflokkur karla mun spila sinn þriðja æfingaleik í vetur þegar liðið mætir Eyjamönnum í Kórnum á laugardag. Liðið hefur leikið tvo æfingaleiki í vetur og hefur annar unnist en hinn tapast. Fyrri leikurinn var gegn Víking Reykjavík og vannst hann 2-1 með mörkum frá Guðjóni Lýðssyni og Arnari Gunnlaugssyni. Arnar skoraði svo líka í tapleik…

  • Lára Rut valin í U-16

    Um helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U-16 ára kvennalandsliðum Íslands. Þorlákur Árnason þjálfari liðsins hefur valið hópinn. Í U-16 eiga Haukar einn fulltrúa en það er Lára Rut Sigurðardóttir. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll um helgina. Um er að ræða 32 manna hóp sem valinn hefur verið. Við óskum Láru Rut til hamingju…

  • Haukamenn í U-17 ára úrtaki karla

    Um helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U-17 ára landsliði karla í knattspyrnu. Að þessu sinni eiga Haukar þrjá leikmenn í 36 manna hóp. Það eru þeir Aran Nganpanya, Arnar Aðalgeirsson og Gunnar Örvar Stefánsson en allir eru þeir fæddir árið 1994 og eru hluti af fyrstu Íslandsmeisturum Hauka í knattspyrnu en þeir sigruðu Íslandsmótið sumarið…