Hvað segir Hilmar Geir Eiðsson ?

Hilmar Geir Eiðsson hefur margt til síns máls að segja þessa daganaNú er komið að því að fara heyra í leikmönnum meistaraflokks karla í knattspyrnu en þeir eru þessa dagana í stífu æfingaprógrami og fá síðan gott jólafrí. Þeir munu síðan mæta endurnærðir eftir áramót í meiri læti en strax í febrúar hefst Deildarbikarinn.

Í dag munum við fá Hilmar Geir Eiðsson leikmann Hauka frá unga aldri í stutt viðtal. En við spyrjum hann út í hans eigið form, hugarfarið hjá leikmönnunum og hvort leikmenn liðsins hafi verið lengi að koma sér niður á jörðina eftir að liðið tryggði sér sæti í Úrvalsdeildina eftir 30 ára fjarveru. Hilmar talar einnig um það að úrslitin og spilamennskan í æfingaleikjunum fyrir áramót skipti voða litlu máli.

Hægt er að lesa viðtalið með því að ýta á „lesa meira“.

Hvernig er ástandið á þér þessa dagana ?

,,Ástandið á mér er ágætt, loksins orðinn meiðslalaus og get því einbeitt mér að því að bæta og fínpússa ýmsa hluti.„

Nú fengu þið gott frí eftir síðasta tímabil, en hafið verið duglegir
að æfa síðustu vikur, eru menn komnir niður á jörðina, eftir að hafa tryggt
sér upp í Pepsi-deildina ?

,,Já, við fengum gott frí, en byrjuðum svo strax fullu með Einari nýja styrktarþjálfaranum, tók mig heila viku að losna við harðsperrurnar eftir fyrstu æfinguna. Það hefur væntalega komið flestum á jörðina og fengið þá til að átta sig að við erum komnir í alvöruna.„

Hvernig kemur þetta fyrir hjá þér, að loksins sé liðið sem þú ert alinn upp í komið upp í deild þeirra bestu ?

,,Langþráð markmið/draumur að rætast, hver sekúnda verður ævintýraleg á næsta ári.“

Finnur þú fyrir öðruvísi hugarfari hjá leikmönnunum nú en t.d. á samatíma og
í fyrra ?

,,Hugarfar manna er klárlega allt annað, spurning hvort það sé gott eða slæmt? En Pepsi-gulrótinn vegur ansi þungt og allir eru tilbúnir að fórna sér fyrir næsta mann.„

Nú hafiði spilað nokkra æfingaleiki, hvernig finnst þér spilamennskan hafa verið?

,,Man ekkert hvernig þessir leikir fóru og hvernig þeir spiluðust, man varla á móti hverjum þeir voru. Leikir fyrir áramót einkennast alltaf af skítlélegum fótbolta, best að pæla sem minnst í því og einbeita sér frekar að því að mæta með rétt hugarfar og bæta samstöðuna innan hópsins.„

Þarf að styrkja liðið með fleiri leikmönnum fyrir næsta tímabil, eða telur þú að sá mannskapur sem er nú þegar hjá Haukum geti gert góða hluti í Pepsi-deildinni? 

,,Ég hef trú á að þessi hópur geti alveg staðið undir væntingum næsta sumar. Auðvitað er alltaf gott að fá sterka leikmenn til að bæta liðið, eins og þegar hefur verið gert, en það þyrfti þá að vera leikmaður sem passar í hópinn. Svo fengum við Tóta Dan aftur, verst að læknarnir tóku eina skrúfu úr hausnum á honum og settu í ökklann, veit bara ekki hvort hann mátti við því.“

Við þökkum Hilmari Geir fyrir þetta og við munum líklega heyra í honum aftur fyrir tímabilið sem og sjá hann láta á sér bera á vellinum bæði í Deildarbikarnum sem og í Pepsi-deildinni. Næsti leikmaður meistaraflokks sem mun sitja fyrir svörum, er enginn annar en blaðberinn, Ásgeir Þór Ingólfsson sem er víst kallaður Geiri Kolbeins. í Keflavíkinni.

Við minnum svo á síðasta æfingaleik liðsins fyrir áramót gegn FH í Kórnum á morgun, laugardag klukkan 16:30.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…