Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Tveir Haukaleikir í Reykjaneshöllinni í dag

    Tveir Haukaleikir fara fram í Reykjaneshöllinni í dag en bæði meistaraflokkur karla og kvenna leika þar í dag. Kvennaliðið mætir Grindavík klukkan 18:00 í A-deild Lengjubikarsins. Karlaliðið mætir hinsvegar Stjörnunni í sínum riðli í Lengjubikarnum. Sá leikur hefst klukkan 16:00.  Við hvetjum fólk til að líta við í Reykjanesbæ á morgun og styðja Hauka til…

  • Tap á Skaganum

    Haukar léku gegn 1.deildarliði ÍA í annarri umferð í Lengjubikar karla á Akranesi í morgun. Skagamenn fóru með sigur úr leiknum með 4 gegn 3. Mörk Hauka skoruðu Hilmar Trausti Arnarsson, Guðjón Pétur Lýðsson og Ásgeir Þór Ingólfsson. Hægt er að lesa umfjöllun um leikinn frá Fótbolti.net með því að ýta á „lesa meira“. Næsti…

  • Sigur í fyrsta leik í Lengjubikarnum

    Haukar og Grindavík mættust í A-deild Lengjubikarsins í kvöld en leikið var í Reykjaneshöllinni og hófst leikurinn klukkan 21:00. Það var ágætlega vel mætt af Haukafólki og vonandi að það verði framhald á því í keppninni.  Til að gera langa sögu stutta þá sigruðu Haukar leikinn með einu marki. Lokatölur 2-1. Guðjón Pétur Lýðsson skoraði…

  • Kristján Óli Sigurðsson í Hauka

    Kristján Óli Sigurðsson skrifaði í vikunni undir eins árs samning við Hauka. En hann kemur til félagsins frá Reyni Sandgerði þar sem hann spilaði 21 leik í 2.deildinni og í bikarkeppninni og skoraði fimm mörk. Kristján er því annar Kristján-inn sem gengur til liðs við Hauka fyrir tímabilið því fyrir áramót kom Kristján Ómar Björnsson…

  • Tvær Haukastúlkur í úrtökum KSÍ um helgina

    Um næstu helgi fara fram úrtaksæfingar hjá A-landsliði kvenna, U-19 og U-17 ára landsliðum kvenna. Haukar eiga tvo fulltrúa í þeim hópum. Í U-19 ára landsliðinu er Þórhildur Stefánsdóttir sem gekk til liðs við Hauka frá HK fyrir áramót. Í U-17 ára landsliðinu er síðan Lára Rut Sigurðardóttir. Þær Þórhildur og Lára munu æfa í…

  • Annað pílukvöld Hauka á föstudaginn

    Annað pílukvöld Hauka verður haldið á Ásvöllum næstkomandi föstudag. Um er að ræða fjáröflun fyrir meistaraflokk karla í knattspyrnu en þeir halda til Portúgals í apríl og klára undirbúningin fyrir Pepsi-deildina. Dagskráin hefst klukkan 20:00 og er aðgangseyri 3000 krónur og innifalið í því er þrír ískaldir sem og tveir píluleikir. Aldurstakmarkið er 18 ára…

  • Æfingaleikur gegn Breiðablik

    Meistaraflokkur karla leikur enn einn æfingaleikinn annað kvöld, nánar tiltekið klukkan 18. Leikurinn verður spilaður í Kórnum og spila strákarnir við Breiðablik. Þetta er þriðji æfingaleikur liðsins á 10 dögum. Liðið hefur litið vel út eftir því sem líður á og voru grannar okkar í FH stálheppnir að ná jafntefli við liðið á laugardaginn en…