Haukar og FH mætast á morgun

HaukarHaukar munu mæta FH í æfingaleik á morgun en leikurinn fer fram í Kórnum í Kópavogi. Búast má við spennandi viðureign enda tvö Hafnarfjarðarlið sem eigast þarna við.

Síðasti leikur Hauka var gegn Keflavík síðasta sunnudag þar sem að þeir náðu að sigra með tveimur mörkum gegn engu þó svo að það vantaði marga lykilmenn í liðið. Sama gæti verið upp á tengingnum á morgun þar sem að enn eru nokkrir leikmenn fjarverandi.

Leikurinn byrjar kl. 16.30 og hvetjum við fólk til að mæta og hvetja okkar menn því það er ekkert sætara en að bera sigurorð af nágrönnum okkar í FH.