Kári: Við verðum með 36 stig, Puntkur !

Áfram heldur umfjöllunin um stórleikinn á sunnudaginn, Haukar – Valur á Ásvöllum.

 
Kári Kristján Kristjánsson, nýjasti pabbi liðsins tók sér smá tíma frá barninu og ákvað að setjast við tölvuna og svara nokkrum spurningum sem ég lagði fyrir hann um komandi átök.

Kári sem verður 24 ára, 28.október er að leika sitt þriðja tímabil hjá Haukum, en þar áður spilaði hann með ÍBV. Kári á þónokkra unglingalandsleiki af baki og 5 A-landsliðsleiki .

 
Ég spurði hann fyrst, hvernig það væri að vera orðinn pabbi og hvernig það gengi „ Heyrðu það gengur bara alveg eins og í sögu. Litla prinsessan mín sefur bara og drekkur og er ekkert í  því að gráta mikið, þannig að við erum rosalega hamingjusöm og heppin með hana við Kiddý. Svo er bara lykillinn að þessu að gera það sem konan segir manni að gera, það hefur víst virkað vel í þessari aðstöðu. “

Ég spurði hann næst útí gengi liðsins í síðustu leikjum sem hefur verið afar gott „ Við erum bara hópur af góðum metanaðrfullum leikmönnum með eldri reynda jaxla inn á milli sem skapa þessu góðu blöndu. Við æfum vel og sinnum þessu að kostgæfni sem kemur út í góðu gengi liðsins. Höfum gott þjálfara teymi og umgjörðin í klúbbnum er frábær. “
„
Það er óneitanlega gott að vera með 6 stiga forystu en það er bara þeim mun meira krefjandi að halda fókus og klára þetta mót til enda. Við erum með gott lið og við erum ekkert að fara að reyna að vinna deildina með einu stigi. Ef við getum unnið hana með 12 stigum þá að sjálfsögðu gerum  við það. Við förum í alla leiki til að vinna og leggja okkur 100% í verkefnið, það er bara klárt“ sagði Kári, aðspurður um það hvort það væri ekki þægilegt að vera með sex stiga forskot á næsta lið þegar einungis sjö umferðir eru eftir af deildinni.

En nú hafa leikir ykkar við Val verið nokkuð jafnir, (einn sigur, eitt jafntefli og tveir tapleikir), heldur þú að það eigi eftir að vera sama upp á teningnum á sunnudaginn ? „ Það er nú ekkert flóknara en það að við erum að fara að vinna þennan leik á sunnudaginn, annað er bara viðbjóður“ – Skemtilega orðað það Kári minn.

Kári lofar skemmtilegum fögnum á sunnudaginn „ Við erum búnir að fara vel yfir fögnin og það munu koma skemmtileg tilþrif sem munu gleðja áhorfendur á sunnudaginn. Þetta verður skemmtilegur leikur fyrir áhorfendurna,  það er deginum ljósara “ , en hvað telur Kári að þurfi að gera til að sigra Valsarana ? „ Það er bara það sem við erum búnir að vera að vinna leiki á í vetur. Geggjuð liðsheild sem skilar sér inn á völlinn í því að við berjumst fyrir hvorn annan og erum að spila bestu vörnina á Íslandi í dag. Mórallinn hjá okkur er frábær  og það er bara klárt að við vitum það að með því að vinna leikinn erum við skrefinu nær titlinum. “

„ Við verðum með 36 ! punktur“ sagði Kári að lokum, aðspurður hvort Haukar mundu vera með 36 stig eftir Valsleikinn.

 
Það er greinilegt að Haukaliðið er klárt í slaginn á sunnudaginn og því er einungis spurning til ykkar áhorfendur, eru þið tilbúin ?

Á morgun mun umfjöllunin halda áfram um stórleikinn.

| Haukar – Valur – Ásvellir – Sunnudagur – 16:00 |

 
    – Arnar Daði Arnarsson skrifar.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…