Kynning á Íþróttaskóla Hauka

Fimmtudaginn 26. apríl verður haldin kynning á Íþróttaskóla Hauka sem verður starfræktur í fyrsta skipti núna í sumar. Skólinn er samstarfsverkefni boltadeildanna innan félagsins og verður í boði fyrir krakka frá 5-12 ára aldurs.

Það eru allir velkomnir að koma og kynna sér þessa spennandi nýjung hjá félaginu. Kynningin fer fram á 2.hæðinni í Íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum og hefst kl. 20:00.