Síðasti leikur strákanna á sunnudag
Á sunnudaginn klukkan 16:00 leika strákarnir í meistaraflokki sinn síðasta leik í vetur. Þá taka þeir á móti Val en Valur á möguleika á að hampa Íslandsmeistaratitlinum.
Þessi leikur verður síðasti leikur Palla okkar Ólafssonar og en hann mun færa sig í önnur verkefni á vegum deildarinnar að tímabili loknum. Að sjálfsögðu ætlum við að kveðja karlinn með sæmd og fjölmenna á Ásvelli. Viggó, sem hefur verið aðstoðarþjálfari Palla síðustu leiki, mun einnig láta af störfum eftir leikinn og munum við að sjálfsögðu kveðja hann einnig.
Palli hefur verið í þjálfarateymi meistaraflokks karla síðustu 6 keppnistímabil, eða frá því haustið 2001. Palli var aðstoðarþjálfari Viggós okkar, sem nú er aðstoðarþjálfari hjá Palla, frá 2001 þar til í desember 2003. Þá lét Viggó af störfum og Páll tók alfarið við. Síðan þá hefur Palli verið aðalþjálfari.
Frá því Palli og Viggó tóku við liðinu haustið 2001 hafa unnist samtals fjórir Íslandsmeistaratitlar í meistaraflokki karla, tveir bikarmeistaratitlar, einn deildarbikarmeistaratitill og 5 deildarmeistaratitlar. Samtals hafa því Palli og Viggó skilað 12 bikurum í hús á Ásvelli. Gerir aðrir betur!! Liðið sigraði í deildarkeppninni öll tímabilinu, að tveimur síðustu tímabilum undanskildum.
Fjölmennum á Ásvelli, styðjum strákana okkar til sigurs og kveðjum Palla og Viggó með sæmd!!
ÁFRAM HAUKAR!!
