Unglingaflokkur karla í undanúrslit
Strákarnir í unglingaflokki karla eru komnir í undanúrslit Íslandsmótsins eftir að hafa sigrað KA í 8 liða úrslitum í dag 30-23 á Ásvelli.
Haukastrákarnir komust strax í góða forystu, komust í 5-0 og svo 10-4. Þá tóku KA menn smá kipp og staðan í hálfleik var 15-12 Haukastrákum í vil. Í síðari hálfleik voru strákarnir okkar mun öflugri og komust úr 19-15 í 24-16 og eftir það var sigurinn aldrei í hættu. Lokatölur eins og áður sagði 30-23.
Strákarnir spila í undanúrlistum á laugardaginn kemur en eins og er er ekki vita hvaða liði þeir mæta. Leikurinn fer fram í Austurbergi og hefst leikurinn klukkan 19:00. Sigri strákarnir leika þeir til úrslita á sunnudaginn klukkan 20:00 en tapi þeir leika þeir um 3. sætið klukkan 18:00.
Til hamingju strákar og gangi ykkur vel um helgina.
ÁFRAM HAUKAR!!
