Haukar-GróttaKR
Ekki gengu hlutirnir upp hjá stelpunum okkar í dag er þær töpuðu 35-37 fyrir GróttuKR á Ásvöllum.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn og jafnt á flestum tölum. Í seinni hálfleik náðu gestirnir betri byrjun og voru yfir eitt til þrjú mörk. Stelpurnar okkar náðu að jafna 26-26 og jafnt var á öllum tölum í 31-31, þá náði GróttaKR tveggja marka forskoti sem stelpurnar okkar náðu ekki að jafna og endaði leikurinn eins og fyrr segir 35-37. Já það voru skoruð 72 mörk í leiknum, sem kannski er ekki skrítið þar sem engar varnir voru til staðar.
Markahæst var Ramune með 18 mörk.
