Haukar-Barcelona
Strákarnir okkar lágu fyrir Spánarmeisturum Barcelona í fyrsta leik í Meistaradeildinni á Ásvöllum í dag. Leikurinn endaði 26-36. Í fyrri hálfleik var nokkuð jafnræði með liðunum, Barcelona alltaf skrefinu á undan en strákarnir okkar ekki langt á eftir. Þeir jöfnuðu rétt fyrir lok hálfleiks 17-17 en gestirnir skoruðu síðasta markið 17-18. Frábær staða í hálfleik á móti einu albesta félagsliði heims. Seinni hálfleikur varð okkar mönnum erfiðari og sigu Börsungar framúr og unnu öruggan sigur. Í raun of stór sigur en munurinn var 5 mörk þegar um sex mínútur voru eftir.
Lið Barcelona er gríðarlega vel skipað, liðið er skipað nánast bestu mönnum í heiminum. Þetta eru allt snillingar með gífurlega reynslu. Þeir spila hratt og tók það sinn toll af okkar mönnum, sérstaklega í seinni hálfleik.
Áhorfendur fjölmenntu á Ásvelli og studdu vel við bakið á strákunum. Umgjörð leiksins var glæsileg, kynning leikmanna og ljósashowið frábært og eins var Karlakórinn Þrestir pottþéttur að vanda. Þrátt fyrir tapið skemmtu menn sér ágætlega og þökkum við öllum sem tóku þátt í þessu með okkur. Veislan heldur áfram og um næstu helgi spila strákarnir okkar við Magdeburg í Þýskalandi. Nánar um það síðar.
Nokkrar myndir úr leiknum eru í myndasafninu.
