Helgin á Ásvöllum
Á morgun föstudag taka stelpurnar okkar á móti KA/Þór og hefst leikurinn kl. 20.00.
Á laugardaginn er Evrópuleikurinn hjá strákunum við Conversano frá Ítalíu kl. 16.30.
Á sunnudag taka stelpurnar á móti Val kl. 18.00.
Að venju eru allir hvattir til að mæta. Stelpurnar þurfa á stuðningi til að halda sér í toppslagnum í Essódeildinni og strákanir þurfa ekki síður stuðning til að halda áfram þátttöku í Evrópukeppninni.
Fólk er hvatt til að mæta tímanlega á Evrópuleikinn, til að missa ekki af dagskráinni fyrir leikinn. Við ætlum að skapa góða stemmingu, svo endilega mætið snemma og fylgist með. Að sjálfsögðu eru skyldumæting hjá öllum Haukum, sem koma og styðja sitt lið. Við bjóðum líka alla aðra handboltaunnendur velkomna á Ásvelli og þætti okkur vænt um ef þið getið komið og stutt strákana í Evrópukeppninni. Boltaunnendur geta líka mætt og fylgst með einum af ítölsku mótherjunum, landsliðsmarkvörðinn Guðmund Hrafnkelsson.
Sjáumst á Ásvöllum
Áfram Haukar
