Haukar-KA/Þór Essódeild kvenna
Stelpurnar unnu góðan sigur á KA/Þór á Ásvöllum í kvöld 24-19. Leikurinn fór hægt af stað og var jafn allan fyrri hálfleik. Báðum liðum gekk illa að skora og var staðan 3-3 þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Haukastelpur voru alltaf fyrri til að skora en norðanstúlkur jöfnuðu svo strax. Staðan í hálfleik var 8-7. Okkar stelpur byrjuðu seinni hálfleikinn betur og náðu að stjórna leiknum. Þær komust í 13-9, 16-11, 19-13, 22-16, 23-18 og endaði svo 24-19. Bekkurinn kom inná fljótlega eftir byrjun seinni hálfleiks og stóðu sig ágætlega.
