Haukar-Conversano FORSALA
Nú fer að styttast í Evrópuleikinn Haukar-Conversano sem fram fer á Ásvöllum laugardaginn 16. nóv. kl. 16.30.
Forsala verður sem hér segir:
Miðvikudaginn 13. nóv. kl. 19.30 22.00 (á sama tíma og óbein útsending verður á leik Conversano-Haukar frá 10. nóv.)
Föstudaginn 15. nóv. kl. 14.00 18.00 (á opnunartíma skrifstofunnar)
Föstudaginn 15. nóv. kl. 19.30 20.30 (á leik Hauka og KA/Þór í mfl.kvenna)
Laugardaginn 16. nóv. kl. 10.00 13.00
Miðaverð er 1.000 kr. fyrir fullorðna og 300 kr. fyrir börn (6 til 14 ára).
Við hvetjum alla Hauka, sem og alla handboltaunnendur til að mæta og styðja við bakið á strákunum. Eftir frábæran leik á Ítalíu um síðustu helgi, sem endaði með jafntefli, eigi þeir góða möguleika á áframhaldandi þátttöku í Evrópukeppninni. Markmið okkar er að fylla Ásvelli og ná upp góðri stemmingu, því góður stuðningur áhorfenda getur hjálpað strákunum langt í baráttunni.
