Conversano-Haukar Óbein útsending
Næstkomandi miðvikudagskvöld 13. nóv. kl. 20.00 verður leikurinn Conversano-Haukar sem leikinn var á Ítalíu um síðustu helgi sýndur í óbeinni útsendingu í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum. Ef tími vinnst til munu fulltrúar félagsins eða þjálfarar gefa upplýsingar um leikmenn aðkomuliðsins svo og andlegt og líkamlegt ástand Haukaliðsins.
Æskilegt er að fólk mæti snemma til að tryggja sér stóla áður en fulltrúar félagsins og þjálfarar mæta !!!
