Boltinn af stað ……
Jæja, þá er loksins komið að því handboltinn er að fara af stað eftir sumarfrí. Á morgun, miðvikudag er fyrsti leikurinn þegar stelpurnar okkar taka á móti ÍBV í Meistarakeppni HSÍ um titilinn Meistari meistaranna. Leikurinn hefst kl. 19.30 á Ásvöllum og hvetjum við alla að mæta á þennan upphafsleik vetrarins.
Fyrsti leikur í Essó deildinni hjá stelpunum er svo föstudaginn 13. sept. kl. 20.00 við Fram í Framhúsi, síðan eiga þær leik við KA/Þór fyrir norðan föstudaginn 20. sept. og við Val á Hlíðarenda sunnudaginn 22. sept. kl. 20.00 Fyrsti heimaleikur í deildinni er við Stjörnuna sunnudaginn 29. sept. kl. 18.00.
Strákarnir eiga fyrsta leik í Essó-deildinni við ÍBV á Ásvöllum sunnudaginn 15. sept. kl. 17.00 og síðan leik við GróttuKR á Ásvöllum, miðvikudaginn 18. sept. kl. 20.00. Laugardaginn 21. sept. fara þeir norður og spila við KA kl. 16.30 og hefur sá leikur tvöfalt vægi, því hann er bæði leikur í deild og eins leikur í Meistarakeppni HSÍ um titilinn Meistari meistaranna.
Við hvetjum alla Hauka, sem og aðra að fjölmenna á leiki vetrarins og styðja við bakið á handboltanum.
