Haukar-Fram mfl.kv. 8-liða úrs
Stelpurnar unnu stórsigur á Framdömum á Ásvöllum í kvöld í fyrsta leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Staðan í hálfleik var 18-8 og endaði leikurinn 31-20. Haukastelpurnar höfðu yfirhöndina allan leikinn, Fram komst reyndar í 0-1 en eftir það tóku Haukarnir völdin og sigurinn var aldrei í hættu. Markahæstar voru Harpa með 8 mörk og Hanna með 6.
Frábær byrjun á úrslitakeppninni, nú er bara að klára dæmið og skella sér í 4-liða úrslitin.
