Tekst Norðanstúlkum að stöðva sigurgöngu Hauka í Olís deild kvenna?
Á morgun laugardag fer fram viðureign Hauka og KA/Þór í Schenkerhöllinni.
Leikurinn hefst klukkan 16:00 og er mikilvægt að allir komi og styðji okkar stelpur til sigurs.
Liðin áttust við í október en þá höfðu Norðanstúlkur sigur 25-24 en Haukar höfðu leitt mestallan leikinn en misstu einbeitinguna á síðustu metrunum.
Við hvetjum alla til að koma og standa við bakið á okkar liði.
