Coca Cola bikarinn: 8-liða úrslit mfl. kvk.

Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson (tekin af handbolti.is) Meistaraflokkur kvenna er kominn í 8-liða úrslit Coca Cola bikarsins eftir glæsilegan sigur á fersku liði Ír síðastliðið föstudagskvöld. Leikurinn var jafn framan af og var staðan í hálfleik 11-13 Haukum í vil. Haukastelpur mættu af fullum krafti í seinni hálfleik og tókst að auka forskotið enn frekar og […]

EVRÓPUKEPPNI MFL. KK. HAUKA

Meistaraflokkur karla í handbolta tekur þátt í EHF European Cup og mun leika gegn liði Parnassos Strovolou í heimalandi þeirra, Kýpur, dagana 16 og 17. október næstkomandi. Lið Parnassos Strovolou hefur tekið þátt í Evrópukeppni síðastliðin 4 ár. Haukar gerðu samkomulag við liðið um að spila báða leikina úti og mun liðið ferðast frá Íslandi 14. […]

Við hefjum leik!

Á laugardaginn hefjum við leik í getraunaleiknum vinsæla. Leikið verður á laugardögum frá kl 10:30 til kl. 12:00 í sal á 2. hæð. Menn eru hvattir til að mæta og eiga saman skemmtilega stund við leik og spjall um landsins gagn og nauðsynjar auk þess að styrkja góð málefni. Veitingar í boði. Starfshópurinn

Coca Cola vika framundan

Það er stór vika framundan hjá handboltanum en bæði meistaraflokksliðin keppa í 16 liða úrslitum Coca Cola bikarsins. Strákarnir hefja leik á fimmtudaginn, 9. september, í Kaplakrika gegn erkifjendum okkar í FH og hefst leikurinn kl. 20:30.   Stelpurnar spila gegn ÍR, föstudaginn 10. september kl. 19:30 í Austurbergi. Við hvetjum allt okkar Haukafólk til […]

Rafíþrótta- og skákæfingar hefjast mánudaginn 6. september!

Mánudaginn 6. september tekur haustæfingatafla Hugaríþróttadeildarinnar gildi. Í boði eru bæði blandaðar rafíþróttaæfingar fyrir 4.-10. bekkinga og skákæfingar sem eru opnar öllum. Aðeins eru 10 pláss í boði í hvorum rafíþróttahópi og fer skráning fram á haukar.felog.is. Allir eru velkomnir á skákæfingarnar. Allar æfingarnar fara fram í húsnæði NÚ við Reykjavíkurveg 50 í Hafnarfirði. Æfingatafla […]

Kristófer Máni lánaður til Aftureldingar

Haukar hafa lánað Kristófer Mána Jónasson tímabundið til Aftureldingar en Kristófer sem er 19 ára á árinu hefur verið einn af hægri hornamönnum meistaraflokks karla undanfarin ár. Kristófer hefur einnig leikið með U liði Hauka síðustu tímabil þar sem hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins. Þar að auki varð Kristófer Máni Íslandsmeistari með 3. […]