Sæunn endurnýjar samning við knattspyrnudeild Hauka

Sæunn Björnsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næstu tveggja ára. Sæunn var valin knattspyrnukona Hauka árið 2018 en hún er ein af lykil leikmönnum meistaraflokks kvenna þrátt fyrir ungan aldur en hún er aðeins 18 ára gömul. Hún á að baki 78 leiki í deild og bikar og hefur […]

Viðurkenningahátíð Hauka 2019

Í hádeginu kl. 12:00 á Gamlársdag krýna Haukar besta íþróttafólk ársins 2019. Valin verða íþróttakona, íþróttakarl og þjálfari ársins. Tilnefndir eru 13 einstaklingar. Auk þess verða kölluð fram og heiðruð með viðurkenningu þeir einstaklingar sem valdir hafa verið í landsliðsverkefni sérsambanda Íslans það eru KSÍ, HSÍ, KKÍ og KAÍ, alls um 100 manns. Þær sem […]

Ásta Sól semur við knattspyrnudeild Hauka

Ásta Sól Stefánsdóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka til næstu tveggja ára en hún er uppalin hjá Selfossi. Ásta er fjölhæfur leikmaður sem býr yfir miklum krafti og dugnaði. Hún getur leyst margar stöður á vellinum þó svo að hún leiki yfirleitt stöðu sóknartengiliðs en hún er útsjónarsöm og fylgin sér. Ásta mun […]

Gleðilega Jólahátíð

Knattspyrnufélagið Haukar færir öllum velunnurum félagsins, starfsfólki, iðkendum, þjálfurum og öðrum þeim sem hafa lagt grunn að öflugu starfi Hauka á árinu sem er að líða, hugheilar jólaóskir. Megi nýtt ár færa okkur mörg tækifæri til gleðiríkra samverustunda og okkar frábæra félagi þróttmikið og árangursríkt íþróttaár. Óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegrar jólahátíðar og farsældar […]

Búið að draga í riðla í Árgangamóti knattspyrnudeildar sem verður á föstudaginn

Dregið var í riðla í Árgangamóti knattspyrnudeildar Hauka 2019 í getraunakaffi í gærmorgun en mótið fer fram föstudaignn 27. desember nk. Leikið verður í tveimur riðlum en í riðli A eru Þristur, Pepsí, Ásinn, Áttan, Fimman og Núllið.  Í B riðli eru Nían, Sjöan, Hetjur, Tvistur, Fjarkinn og Sexan. Í mótinu er keppt annars vegar […]

Heiða Rakel endurnýjar samning við knattspyrnudeildina

Heiða Rakel Guðmundsdóttir hefur endurnýjað samning sinn við knattspyrnudeild Hauka til næstu tveggja ára. Heiða Rakel er kraftmikill sóknartengiliður sem býr yfir miklum hraða. Heiða er uppalin á Ásvöllum og hefur verið ein af lykilmönnum liðsins undanfarin ár. Stjórn knattspyrnudeildar fagnar nýjum samningi við Heiðu og er það mikið ánægjuefni að fá að njóta krafta […]

Sara Björk stjórnaði æfingu á Ásvöllum og áritaði Óstöðvandi

Okkar magnaða Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Wolfsburg, mætti á Ásvelli í gær og stjórnaði sameiginlegri æfingu 4. og 5. flokks kvenna. Þrátt fyrir nokkurt frost og vind, jólaböll og jólafrí hjá mörgum iðkendum var góð mæting á æfinguna enda stelpurnar ofur spenntar að hitta Söru Björk sem spjallaði við þær um […]