Heiða Rakel endurnýjar samning við knattspyrnudeildina

Heiða Rakel Guðmundsdóttir hefur endurnýjað samning sinn við knattspyrnudeild Hauka til næstu tveggja ára.

Heiða Rakel er kraftmikill sóknartengiliður sem býr yfir miklum hraða. Heiða er uppalin á Ásvöllum og hefur verið ein af lykilmönnum liðsins undanfarin ár.

Stjórn knattspyrnudeildar fagnar nýjum samningi við Heiðu og er það mikið ánægjuefni að fá að njóta krafta hennar áfram og mun hún nýtast liðinu vel í komandi baráttu.

Heiða Rakel Guðmundsdóttir