Sæunn endurnýjar samning við knattspyrnudeild Hauka

Sæunn Björnsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næstu tveggja ára.

Sæunn var valin knattspyrnukona Hauka árið 2018 en hún er ein af lykil leikmönnum meistaraflokks kvenna þrátt fyrir ungan aldur en hún er aðeins 18 ára gömul. Hún á að baki 78 leiki í deild og bikar og hefur skorað 9 mörk.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Sæunni og bindur miklar vonir við hana á komandi tímabili.

 

Sæunn Björnsdóttir