KA-Haukar

Ekki tókst það fyrir norðan en strákarnir okkar töpuðu í gær 33-29 fyrir KA í öðrum leik liðanna í 4-liða úrslitum. Þetta var hörkuleikur og KA menn sem komnir voru upp að veggnum fræga lögðu allt undir en okkar menn voru ekki alveg tilbúnir í slaginn. Hvorugu liðinu gekk að skora í byrjun en Haukar […]

3.umferðin í boðsmótinu

Mikið var um frestanir í 3. umferðinni sem fram fór 29. apríl. Aðeins 8 skákir af 12 sem fram áttu að fara voru tefldar. Nokkuð var um spennandi skákir, en þó enduðu þær allar eins og búist var við. A-Riðill Aðeins var ein skák tefld í þessum riðli. Nafnarnir Sverrir Örn Björnsson og Sverrir Þorgeirsson […]

Haukar-KA

Það var frábær leikur sem boðið var uppá á Ásvöllum í kvöld þegar Haukar sigruðu KA 36-30 í fyrsta leik liðanna í 4-liða úrslitum. Strákarnir okkar mættu feikna vel stemmdir og voru á tánum frá fyrstu mínútu. Þeir skoruðu fyrsta markaði og létu forystuna ekki af hendi það sem eftir var leiks. Þegar um níu […]

Boðsmót Hauka 3. umferð.

Næsta umferð fer fram á fimmtudaginn 29/4 kl. 19. Þá mætast eftirtaldir: Sverrir Örn – Sverrir Þorgeirsson Halldór G. – Árni frestað Guðmundur – Sigurbjörn Auðbergur – Gísli H. frestað Ingi Tandri – Þorvarður Ragnar – Stefán Freyr frestað Einar – Gísli Pétur Heimir – Páll Daníel – Snorri Jón – Sigurður Sveinn – Davíð […]

Haukar-KA 4-liða úrslit

Jæja, þá er sumarið loksins komið og fyrsti leikur í 4-liða úrslitum karla alveg að bresta á. Við vonum að strákarnir okkar komi vel undan vetri því mótherjar þeirra eru engir aðrir en KA menn, fulltrúar höfuðstaðs Norðurlands. Fyrsti leikur verður á Ásvöllum þriðjudaginn 27. apríl kl. 19:15. Annar leikur á Akureyri fimmtudaginn 29. apríl […]

Boðsmót Hauka 2.umferð

Boðsmót Hauka 2.umferð 2.umferð í boðsmótinu fór fram 15.apríl síðastliðinn. Þó flest úrslit væru eftir bókinni, þá var mikið um skemmtilegar skákir og C-Riðillinn opnaðist upp á gátt með 2 jafnteflum. Því er ljóst að spennan verður mikil allt til loka. Í A-riðli voru aðeins tvær skákir tefldar, þar sem mesta efni Hauka, Sverrir Þorgeirsson, […]

ÍBV-Haukar 8-liða úrslit

Strákarnir okkar tryggðu sér sæti í 4-liða úrslitum með sigri á ÍBV í Eyjum í dag 35-39. Í 4-liða úrslitum spila strákarnir við KA og hefst sú rimma ekki fyrr en komið er sumar eða nánar tiltekið 27. apríl og er fyrsti leikur á Ásvöllum.

ÍBV-Haukar í dag

Minnum á leikinn hjá strákunum við ÍBV í 8-liða úrslitum, sem hefst kl. 16:15 Eyjum. Hvetjum Haukafólk til að setja sig í stellingar og senda baráttustrauma til Eyja. Áfram Haukar

Konur – takið kvöldið frá

Ágæta Haukakona Jæja, þá er loksins komið að hinu vinsæla kvennakvöldi Hauka. Það verður haldið að Ásvöllum föstudaginn 30. apríl n.k. Þetta verður með hefðbundnum hætti, góður matur, happadrætti og fleira. Veislustjóri verður Harpa Melsted, meistaraflokksleikmaður í blóma. Ræðukona verður Ágústa Jóhannsdóttir og svo endar kvöldið með hljómsveitinni Randver. Bræðragengið framreiðir góðan mat fyrir okkur […]