Viðtöl fyrir karlaleikinn í Final 4. Haukar – ÍBV í Höllinni í dag kl. 20:00

Við spjölluðum við Patrek þjálfara, Þröst Þráins og Tjörva Þorgeirs um leikinn mikilvæga í kvöld. Til að sjá myndbandið smellið hér.

Eins og flestir vita þá náðu stelpurnar okkar ekki taktinum gegn Val í gær og annað árið í röð duttu þær út í undanúrslitum gegn Val. Vel var mætt á leikinn og fjör á pöllunum, eins og það á að vera.
Í kvöld er komið að strákunum en þeir mæta liði ÍBV kl. 20:00. Þarna mætast tvö jöfn lið og lið sem halda á báðum stóru titilunum. Við þurfum að fá frábæran stuðning áhorfenda en það skiptir strákana miklu máli að það heyrist vel í okkar fólki.
Miðasalan er í fullum gangi á Ásvöllum og verður opin til kl. 19:00 en þá fara rútur frá Ásvöllum á leikinn. Ekkert kostar í rúturnar og fara þær til baka á Ásvelli að leik loknum.
Tryggið ykkur miða í forsölunni því þá renna tekjurnar til okkar annars ekki. Mætum með góða skapið og kraftinn, áfram Haukar!