ÍR – Haukar í Olísdeildinni í kvöld kl. 19:30

ÍR - Haukar. 4. mars 2015. 19. umf.Eftir bikarveislu síðustu helgar þá heldur Olísdeildin áfram. Stelpurnar okkar heimsækja í kvöld lið ÍR í Austurbergið og hefst leikurinn kl. .19:30. ÍR hefur átt erfitt tímabil í deildinni og eru þær neðstar með 1 stig en okkar konur sitja í 4. sæti með 24 stig. ÍR stúlkur fengu nýjan þjálfara í vikunni og munu vafalítið mæta stemmdar í þennan leik og því mikilvægt að við mætum í Austurbergið og styðjum Haukastúlkur til sigurs.

Áfram Haukar!