Valur – Haukar á laugardaginn

HaukarÁ laugardaginn næstkomandi heimsækir meistaraflokkur kvenna lið Vals í Vodafone-höllinni. Leikuinn hefst klukkan 16:00 en leikurinn er liður í 5.umferð N1-deildar kvenna.

Haukaliðið hefur sigrað síðustu þrjá leiki í deildinni eftir að hafa byrjað deildina með tapi gegn Stjörnunni. Í síðustu umferð sigruðu þær Fylki með fimm marka mun, 29-24.

Valsstúlkur eru eins og Haukar með 6 stig eftir fjóra leiki, en eini tapleikur Vals er einnig gegn Stjörnunni. Valur sigraði FH í síðustu umferð í Kaplakrika með fjögurra markamun 35-31.

 Búist er við hörkuleik enda bæði lið vel skipuð og hafa verið að leika góðan handbolta í síðustu leikjum. Valur er talið vera með sterkasta leikmannahópinn í deildinni en Haukastelpurnar ætla að selja sig dýrt í leiknum.

Við hvetjum því alla til að fjölmenna í Vodafone-höllina á laugardaginn.